Margrét Erla Maack fær uppsagnarbréf Jakob Bjarnar skrifar 27. nóvember 2013 11:30 Margrét Erla Maack er meðal þeirra sem sagt hefur verið upp störfum en Kastljósþátturinn er nú vængbrotinn.
Kastljósið verður fyrir miklu höggi. Margrét Erla Maack bætist í hóp þeirra sem fá uppsagnarbréf. Ljóst er að Kastljósþátturinn verður vængbrotinn það sem eftir lifir vetrar en þegar hefur komið fram að Jóhannes Kr. Kristjánsson er meðal þeirra sem sagt hefur verið upp störfum. Sigmar Guðmundsson, ritstjóri þáttarins, vill ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Þeir sem Vísir talar við og starfa á Ríkisútvarpinu tala um svartan dag og ríkir sannkölluð jarðarfararstemmning í húsinu. Margir eru í áfalli en stöðugur straumur fólks er upp á 5. hæð þar sem yfirstjórnin leggur fyrir það uppsagnarbréf. Vísir hefur þegar greint frá því að Kristófer Svavarsson fréttamaður hefur fengið uppsagnarbréf og leggjast næturfréttir Ríkisútvarpsins við það niður. Nýtt nafn á lista þeirra sem hafa fengið uppsagnarbréf eru Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á íþróttadeildinni og eru þá einungis tveir fastráðnir eftir á íþróttadeildinni. Adolfi Inga Erlingssyni var einnig sagt upp störfum. Þá er útvarpsmaðurinn Guðfinnur Sigurvinsson, sem hefur að undanförnu starfað við síðdegisútvarpið, meðal þeirra sem fara og Gunnar Gunnarsson í Speglinum fær starfslokasamning. Samkvæmt heimildum Vísis stendur fyrir dyrum nokkur niðurskurður á starfsstöðinni á Akureyri en talað er um að uppsagnir verði í heild um 60. Við bætist að tímabundnir samningar, sem eru allnokkrir við þáttagerðarfólk sem tæknimenn, verða ekki endurnýjaðir. Víst er að Ríkisútvarpið á marga vildarvini því nú þegar hafa tæplega 800 skrifað á undirskriftarlista þar sem uppsögnunum er mótmælt.
Mest lesið Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Innlent Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Innlent Ræða mögulega við rútubílstjórann í dag Innlent Grunaður um kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni Innlent Ummerki um að vegurinn hafi gefið sig Innlent Segir veginn ekki hafa gefið sig Innlent Tók myndir af fólki á skemmtistað í leyfisleysi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þessi iðnaður er með meira eða minna allt niður um sig“ Innlent Segir róðurinn vera að þyngjast fyrir Ísraelsmenn Innlent Fleiri fréttir Fundu loks heitt vatn í Tungudal Dæmi um að börn þori ekki út í frímínútur Tveir bílar skullu saman á Reykjanesbraut Þakka að ekki fór verr í rútuslysi og hafnfirsk börn þora varla út Ágreiningur um túlkun sem nái inn á borð ríkisstjórnarinnar Segir veginn ekki hafa gefið sig Vilja nýtt hjúkrunarheimili í Vík í Mýrdal Yazan bíður enn svara Segir róðurinn vera að þyngjast fyrir Ísraelsmenn Íslendingurinn enn á sjúkrahúsi í Bangkok Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Öruggast að sjóða neysluvatn á Flateyri Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Rútuslys í Rangárþingi og óvissa um brottflutning palestínsks drengs Ummerki um að vegurinn hafi gefið sig Malbika hægri akrein Reykjanesbrautar á morgun Áfengissala, forsetakosningar og neytendamál Ræða mögulega við rútubílstjórann í dag Tók myndir af fólki á skemmtistað í leyfisleysi Grunaður um kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni „Þessi iðnaður er með meira eða minna allt niður um sig“ Auglýst eftir ungum og efnilegum hökkurum Allir um borð í rútunni Íslendingar Óttast eyðileggingu íslenskrar brimbrettamenningar Geir og Jóhanna lýsa yfir stuðningi við Höllu Hrund Bregst við áhyggjum af áfengissölu og áhyggjur brimbrettakappa Sjö fluttir með þyrlu eftir rútuslys á Suðurlandi Lögreglan náði lausum grís Enginn kemst sjálfkrafa í könnunarhóp Prósents Afmælisstemming hjá Eldstó á Hvolsvelli Sjá meira