Lífið

Síðasta tækifærið til að skrá sig í Jólastjörnuna 2013

Jólastjörnukeppnin hefur vakið stormandi lukku undanfarin ár. Í fyrra vann Margrét Stella Kaldalóns keppnina. Margrét Stella flutti meðal annars jólalagið sívinsæla Ég hlakka svo til á tónleikunum það árið og vakti mikla athygli. Í myndskeiði sem fylgir má sjá þegar Margréti Stellu var tilkynnt að hún hefði verið valin úr um fimm hundruð umsækjendum, Jólastjarna ársins 2012.

Hér er hægt að skrá sig í keppnina í ár.

Stöð 2, Góa, Fjarðarkaup og Sena standa nú fyrir söngkeppni fyrir unga snillinga þriðja árið í röð og sigurvegarinn kemur fram á stærsta sviði landsins með aragrúa af stjörnum laugardaginn 14. desember á stórtónleikunum Jólagestir Björgvins.

Þátttakendur syngja lag að eigin vali, með sínu nefi og senda okkur hlekk á myndbandsupptöku af söngnum.

10 bestu söngvararnir að mati dómnefndar verða boðaðir í prufur og eftir þær mun sigurvegarinn koma í ljós. Ísland í dag á Stöð 2 mun fylgjast grannt með framvindunni og afhjúpa sigurvegarann þegar af því kemur.

Við biðjum þátttakendur vinsamlegast að fylla út upplýsingar í þar til gerða reiti hér fyrir neðan. Setja þarf meðal annars inn hlekki á myndbönd eða skrár þar sem þátttakendur láta ljós sitt skína.

Við bendum á myndbandasíður á borð við YouTube og Vimeo. Einnig er hægt að senda hlekki á skrár á skráarhýsingarsíðum á borð við WeTransfer.com, DropboxBox.comGoogle Drive eða aðra staði sem dómnefnd getur auðveldlega nálgast myndböndin á.

Myndböndin eða skrárnar skal merkja á þennan hátt: Jólastjarnan 2013 - Nafn keppanda.

Lagaval er algjörlega frjálst og má lagið sem sungið er vera eftir hvern sem er, af hvaða tegund sem er, á íslensku eða útlensku; það má vera jólalag en þarf þess ekki. Þátttakendur ráða því að auki hvort þeir syngi við undirspil eður ei.

Skráningu lýkur á miðnætti í kvöld. 10 krakkar verða í kjölfarið boðaðir í prufur og sigurvegarinn verður svo afhjúpaður í Íslandi í dag.

Aldurstakmark: 16 ára og yngri.

Skilyrði: Allir þátttakendur þurfa leyfi forráðamanna.

Dómnefnd: Björgvin Halldórsson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Gunnar Helgason og Hulda Björk Garðarsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×