Óbreyttir stýrivextir 2. október 2013 09:06 Í tilkynningu frá bankanum segir að bráðabirgðatölur bendi til þess að hagvöxtur á fyrri hluta ársins hafi verið rúmlega 2 prósent, sem er að sögn bankans nokkru meira en gert var ráð fyrir í ágústspá hans.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun að hún hafi ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum. Daglánavextir bankans verða því áfram sjö prósent, innlánsvextir fimm prósent og vextir af lánum gegn veði til sjö daga (stýrivextir) sex prósent. Í tilkynningu frá bankanum segir að bráðabirgðatölur bendi til þess að hagvöxtur á fyrri hluta ársins hafi verið rúmlega 2 prósent, sem er að sögn bankans nokkru meira en gert var ráð fyrir í ágústspá hans. Þá hefur batinn á vinnumarkaði hefur einnig haldið áfram. „Verðbólga jókst nokkuð á þriðja fjórðungi ársins í takt við ágústspá bankans. Inngrip Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði hafa stuðlað að minni sveiflum krónunnar. Verðbólguvæntingar hafa þó ekki lækkað og kann það að markast af óvissu um áhrif greiðslubyrði erlendra lána, uppgjöra búa fallinna banka og losunar fjármagnshafta á gengisþróun næstu missera. Einnig skiptir máli óvissa vegna komandi kjarasamninga. Í ágústspá Seðlabankans var gert ráð fyrir launahækkunum í kjarasamningum sem eru umfram það sem samræmist verðbólgumarkmiðinu og var þá byggt á sögulegri reynslu. Verði launahækkanir í samræmi við spána er líklegt að nafnvextir bankans muni að óbreyttu hækka í framhaldinu, sérstaklega ef slakinn í þjóðarbúskapnum heldur áfram að minnka. Launahækkanir umfram það auka líkur á vaxtahækkunum enn frekar. Verði launahækkanir hins vegar í samræmi við verðbólgumarkmið mun verðbólga að öðru óbreyttu hjaðna hraðar en gert er ráð fyrir í spánni og vextir verða lægri en ella. Peningastefnan hverju sinni þarf að taka mið af stefnunni í opinberum fjármálum og öðrum þáttum sem hafa áhrif á eftirspurn í þjóðarbúskapnum. Áform í opinberum fjármálum hafa skýrst nokkuð með nýju fjárlagafrumvarpi. Í samræmi við fyrri áætlanir gerir nýtt fjárlagafrumvarp ráð fyrir að afgangur á jöfnuði fyrir fjármagnstekjur og -gjöld (þ.e. frumjöfnuður) aukist frá þessu ári og að skuldir lækki sem hlutfall af landsframleiðslu. Mikilvægt er að heildarafgangur náist á ríkissjóði sem fyrst þannig að samspil stefnunnar í peninga- og ríkisfjármálum stuðli með sem minnstum tilkostnaði að ytra jafnvægi þjóðarbúsins, efnahagslegum stöðugleika og verðbólgu í samræmi við markmið. Laust taumhald peningastefnunnar hefur á undanförnum misserum stutt við efnahagsbatann. Áfram gildir að eftir því sem slakinn hverfur úr þjóðarbúskapnum er nauðsynlegt að slaki peningastefnunnar hverfi einnig. Að hve miklu leyti aðlögunin á sér stað með breytingum nafnvaxta Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar, sem ræðst að miklu leyti af þróun launa og gengishreyfingum krónunnar."
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir Hagnaður um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Sjá meira