Staða sveitarfélaganna fer batnandi 4. júní 2013 08:45 Umtalsverð breyting til batnaðar var á afkomu Álftaness frá fyrra ári.
Staða sveitarfélaga landsins hefur farið batnandi á síðasta ári. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningar Arion banka. Greiningin hefur tekið saman og greint ársreikninga sveitarfélaga sem eiga það sammerkt að íbúafjöldi þeirra er yfir 1.500 manns. Alls eru sveitarfélögin sem við skoðuðum 28 talsins og er samanlagður íbúafjöldi þeirra um 298.000 eða 93% af landsmönnum. Í greiningunni er horft til uppgjöra A- og B-hluta sveitarfélaganna, þ.e. meðtalin í reikningsskilin eru fyrirtæki sveitarfélaga, stofnanir og aðrar rekstrareiningar. Þannig er til dæmis Orkuveita Reykjavíkur meðtalin í reikningum Reykjavíkurborgar enda bera sveitarfélögin ábyrgð á skuldbindingum B-hluta félaga sinna. Alls jukust tekjur sveitarfélaganna að meðaltali um 8,8% að nafnvirði frá árinu 2011 og 21 af 28 sveitarfélögum skiluðu jákvæðri rekstrarniðurstöðu á síðasta ári. Það er umtalsvert betri niðurstaða en árið 2011 þegar 12 sveitarfélög af þeim 28 sem til skoðunar voru skiluðu jákvæðri rekstrarniðurstöðu. Það er einnig til marks um batnandi afkomu að þau sveitarfélög sem eru verst stödd hvað varðar skuldsetningu skiluðu á síðasta ári töluvert betri afkomu en árið á undan. Hafnarfjarðarbær sker sig þó úr hvað það varðar en afkoma bæjarfélagsins var töluvert verri en fjárhagsáætlun fyrir liðið ár gerði ráð fyrir. Á síðasta ári féll dómur í hæstarétti sem hafði fordæmisgildi fyrir lífeyrisskuldbindingu Hafnarfjarðar og var hún færð til gjalda í rekstrarreikningi sveitarfélagsins. Umtalsverð breyting til batnaðar var á afkomu Álftaness frá fyrra ári en sveitarfélagið lauk á síðasta ári fjárhagslegri endurskipulagningu þegar íbúar Álftaness og Garðabæjar samþykktu í íbúakosningu 20. október sl. að sameinast undir nafni Garðabæjar og tók sameiningin gildi 1. janúar sl. Álftanes er því framvegis hluti af Garðabæ og heyrir sögunni til sem sjálfstætt sveitarfélag.Mörg sveitarfélög enn of skuldsett Eins og áður sagði ber sveitarfélögum að vera undir skuldaviðmiði skv. sveitarstjórnarlögum, þ.e.a.s. heildarskuldir og skuldbindingar samstæðu mega ekki vera umfram 150% af reglulegum tekjum. Hinsvegar er sveitarfélögunum heimilt skv. reglugerð að draga frá heildarskuldum ákveðnar skuldir og skuldbindingar. „Ber þar helst að nefna að samstæðunum er heimilt að draga frá lífeyrisskuldbindingar sem koma til greiðslu eftir 15 ár og síðar, hreint veltufé frá rekstri, sé það jákvætt og leiguskuldbindingar frá ríkissjóði. Það sem okkur þykir hinsvegar skjóta nokkuð skökku við er að sveitarfélögum er heimilt að undanskilja reikningsskil veitu- og/eða orkufyrirtækja ef heildarskuldir og skuldbindingar eru umfram 30% af heildarskuldum sveitarfélagsins,“ segir í Markaðspunktunum. Þrátt fyrir árangur er það ljóst eins og áður sagði að mörg sveitarfélög eru of skuldsett og eiga nokkuð í land með að komast undir skuldaviðmiðið sem sveitarstjórnarlögin gera ráð fyrir. Árið 2013 gæti einnig reynst nokkuð þungt fyrir sveitarfélög með tilliti til afborgana af langtímaskuldum en tæplega þriðjungur áætlaðra afborgana næstu fjögurra ára falla á gjalddaga á árinu. Til að setja það í nánara samhengi þýðir það að fimmta hver króna sem sveitarfélögin öfluðu á síðasta ári fara í afborganir af langtímaskuldum á þessu ári.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira