Vestmannaeyingar saka Magnús Kristinsson um laumuspil Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. maí 2013 11:48 Magnús Kristinsson útgerðarmaður er sakaður um laumuspil í viðskiptum við Síldarvinnsluna.
Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar segir að það komi á óvart hversu einbeittir kaupandi og seljandi fyrirtækisins Berg-Huginn hafi verið í því að koma í veg fyrir að forkaupsréttur Vestmannaeyjabæjar á fyrirtækinu væri nýttur. Magnús Kristinsson útgerðarmaður seldi Síldarvinnslunni á Neskaupstað Berg-Huginn fyrir fáeinum mánuðum. Vestmannaeyjabær mótmælti harðlega sölunni og taldi sig eiga forkaupsrétt. Samkeppniseftirlitið rannsakaði söluna um tíma en komst að þeirri niðurstöðu að ekki yrði gripið til ráðstöfunar vegna sölunnar.Eignirnar fluttar í leyni til Reykjavíkur Bæjarráð Vestmannaeyja segir að umræddar eignir, sem tengjast Bergi-Huginn, hafi til að mynda fyrst verið fluttar á leynd í félög með heimilisfesti í Reykjavík áður en þær voru seldar til Síldavinnslunar. Þá vekur það einnig athygli og undrun að samningur sá er málið snýst um er ekki lagður fram sem málsgögn. Bæjarráð Vestmannaeyja segir mikilvægt fyrir öll sjávarútvegssamfélög að fá úr því skorið í eitt skipti fyrir öll hvort að sá réttur sem íbúum er falin í lögum um stjórn fiskveiða sé virkur. Er þar vísað í forkaupsrétt sveitarfélaga á útgerðum sem seldar eru úr viðkomandi byggðum. Ef ekki hljóti það að verða krafa allra sjávarútvegssveitarfélaga að ný ríkisstjórn geri það að sínu fyrsta verki að auka rétt íbúa þegar kemur að kaupum og sölu aflaheimilda. „Sá hái sértæki skattur á sjávarútveg sem stjórnvöld hafa nú heitið að lækka, er einungis ein birtingarmynd óréttlætis gagnvart sjávarbyggðum. Hin hliðin er sú ef málum verður þannig hagað að án fyrirvara geti útgerðarmenn svipt heilu byggalögin tilverugrunni sínum. Slíkt fær ekki viðgengist og um það verður aldrei sátt meðal íbúa sjávarbyggða. Þær leikreglur sem fólgnar eru í forkaupsréttinum tryggja að aflaheimildir flytjast ekki frá byggðalagi á meðan enn er arðbært að gera þar út. Bæjarráð Vestmannaeyja ætlast til að þessi leikregla sé virt af útgerðamönnum og minnir á að sá strengur sem er milli útgerðamanna og íbúa í sjávarbyggðum er báðum aðilum mikilvægur. Það verður holur hljómur í rödd þeirra útgerða sem ekki sýna íbúum sjávarbyggða þá hollustu sem þeir sjálfir ætlast til,“ segir í bókun Vestmannaeyjabæjar.Mikil blóðtaka fyrir sveitarfélagið Bæjarráð Vestmannaeyja segir að ef salan á Bergi Huginn til Síldavinnslunar verði að veruleika þá sé um mikla blóðtöku að ræða fyrir sveitarfélagið. Samtals tapist 72 störf sem hafi gefið 642 milljónir í laun og beint útsvarstap nemi því um 93 milljónum. Þá hafði Vestmannaeyjahöfn um 22 milljónir í tekjur af skipum útgerðarfélagsins árið 2011 og telur bæjarráð að nærri láti að um sé að ræða átta til tíu prósent af hagkerfi Vestmannaeyja. Í bókun bæjarráðs segir að bæjarstjóra sé falið að fylgja málinu áfram eftir af festu og þá ekki síst gagnvart nýjum sjávarútvegsráðherra.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira