Hagnaður OR 4.2 milljarðar á fyrsta ársfjórðungi 17. maí 2013 12:08
Hagnaður Orkuveitu Reykjavíkur var 4,2 milljarðar kr. eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi ársins. Þetta er verulegur viðsnúningur til hins betra í rekstri OR. Á sama tímabili í fyrra var rétt tæplega 4 milljarða kr. tap á rekstrinum. Í tilkynningu segir að góður rekstur Orkuveitu Reykjavíkur sé að festast í sessi. Framlegð reksturs samstæðu Orkuveitunnar (EBITDA) á fyrsta fjórðungi ársins nam 7,3 milljörðum króna en var 7,2 milljarðar á sama tímabili 2012. Ytri áhrifaþættir þ.e. gengi, álverð og vextir hafa nú jákvæð áhrif á afkomuna en þau voru neikvæð á sama tímabili í fyrra. „Áfram er lögð áhersla á niðurgreiðslu skulda og hafa þær lækkað um 10,5 milljarða króna frá fyrra ári. Með bættri rekstrarafkomu og festu við að framfylgja Plani Orkuveitunnar og eigenda fyrirtækisins er aðgangur Orkuveitunnar að íslenskum og erlendum fjármálamörkuðum nú smám saman að opnast. Það hefur gert fyrirtækið betur í stakk búið til að verja sig fyrir sveiflum í ytri áhrifaþáttum rekstursins; gengi krónunnar, vöxtum og álverði,“ segir í tilkynningunni.Ekki á lygnum sjó „Orkuveitan er ekki komin á lygnan sjó þó við séum farin að sjá glitta í heiðan himin. Mikilvægir áfangar hafa náðst á síðustu vikum og mánuðum og skiptir þar mestu að fyrirtækið nýtur nú trausts á alþjóðlegum fjármálamarkaði. Nýlegir lána- og áhættuvarnasamningar eru til marks um það,“ segir Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar í tilkynningunni. „Starfsfólk og stjórnendur eiga heiður skilinn fyrir staðfestu í að halda Plani. Aðgerðaáætlunin er nú rúmlega tveggja ára og hefur staðist í öllum veigamestu þáttum hennar og gott betur. Á sama tíma hefur tekist að halda uppi traustri og góðri þjónustu og við vinnum stöðugt að því að tryggja viðskiptavinum Orkuveitunnar öruggan aðgang að orku og hreinu vatni.“
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira