Advania smíðar vöruhús Íbúðalánasjóðs 22. apríl 2013 11:43 Ottó Magnússon ráðgjafi Capacent, Þórdís Þórsdóttir sviðsstjóri upplýsingatækni hjá Íbúðalánasjóði, Sigurður Erlingsson forstjóri Íbúðalánasjóðs, Gestur G. Gestsson forstjóri Advania og Sigríður Þórðardóttir forstöðumaður viðskiptagreindar hjá Advania.
Í kjölfar útboðs Ríkiskaupa á síðasta ári fyrir Íbúðalánasjóð á vöruhúsi gagna og hugbúnaði á sviði viðskiptagreindar var gengið til samninga við Advania og samstarfsaðila fyrirtækisins, SAP Business Objects. Í tilkynningu segir að verkefnið sé nú hafið og áætluð verklok eru á haustdögum 2013. „Þetta er umfangsmikið verkefni, en því miðar vel áfram. Markmið þess er að vinnsla gagna verði miðlæg og tryggi þannig örugga og samræmda upplýsingagjöf Íbúðalánasjóðs. Uppbygging vöruhússins mun auka hagræði í allri gagnavinnslu og vinnslu upplýsinga fyrir Fjármálaeftirlit og aðra eftirlitsaðila. Með vöruhúsinu mun upplýsingaflæði til stjórnenda batna til muna, sem styður við betri og hraðari ákvörðunartöku. Allar greiningar á lánasafni Íbúðalánasjóðs, sem er stærsta lánasafn landsins, munu verða hraðvirkari og nákvæmari, þannig að stjórnendur og sérfræðingar fá aukinn tíma í aðgerðir. Samhliða verða gögn úr mismunandi kerfum og grunnum sjóðsins gerð aðgengileg fyrir stjórnendur, starfsmenn og ytri aðila, eftir því sem þörf krefur," segir Sigurður Erlingsson forstjóri Íbúðalánasjóðs í tilkynningunni. „Íbúðalánasjóður og Ríkiskaup vönduðu mjög til verka við undirbúning þessa útboðs og ráðgjafarfyrirtæki þeirra í verkefninu er Capacent. Það var þess vegna ákveðinn gæðastimpill á lausnir okkar á sviði viðskiptagreindar að hreppa verkefnið. Advania hefur um árabil unnið markvisst að uppbyggingu öflugs viðskiptagreindarteymis, sem meðal annars veitir ráðgjöf við stefnumótun og markmiðasetningu varðandi vöruhús gagna og viðskiptagreind," segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania.
Mest lesið Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Himneskt ei meir Viðskipti innlent Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Samstarf Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Sjá meira