Spáir því að verðbólgan minnki í 2,9% í apríl 22. apríl 2013 12:05
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) lækki um 0,2% í apríl. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan minnka úr 3,9% í 2,9%. Fjallað er um málið í Hagssjá deildarinnar. Þar segir að bensínverð hafi mestu áhrifin í spánni. Samkvæmt verðkönnun Hagfræðideildar lækkaði bensín um 5% milli mánaða. Þar fer saman lækkandi heimsmarkaðsverð og sterkara gengi krónunnar. „Sterkara gengi krónunnar heldur áfram að hafa áhrif á verðlag í mánuðinum. Þannig hafa mörg bílaumboð lækkað verð á nýjum bílum ásamt því að við teljum að verð á húsgögnum og heimilisbúnaði muni lækka.,“ segir í Hagsjánni. „Við gerum ráð fyrir að ferðir og flutningar muni lækka í mánuðinum. Flugfargjöld til útlanda eru sá liður sem sveiflast mest og erfiðast hefur reynst að spá fyrir um. Engu að síður er sterkt samband milli þróunar eldsneytisverðs og verðs á flugfargjöldum til útlanda og því er gert ráð fyrir lækkun á liðnum í heild. Við búumst við mestum hækkunum á fötum og skóm ásamt húsnæðisliðnum án reiknaðrar húsaleigu. Einnig teljum við að matvara hækki lítillega þrátt fyrir mikla styrkingu krónu. Þar inní spilar m.a. sykurskatturinn sem settur var á í mars.“ Bráðabirgðaspá Hagfræðideildar gerir ráð fyrir að VNV hækki um 0,2% í maí, 0,3% í júní og lækki um 0,6% í júlí. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan verða í kringum 3% á næstu mánuðum.
Mest lesið Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira