Lífið

Greinilega stuð hjá Samfylkingunni

Ellý Ármanns skrifar
Okkur barst meðfylgjandi myndir úr herbúðum Samfylkingarinnar. Eins og sjá má hefur mikill mannfjöldi verið í allan dag á kosningsakrifstofu Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ frá því hún var opnuð klukkan 09.00 í morgun. Bæði ungir og aldnir hafa komið við á kosningaskrifstofunni og gætt sér á hnallþórum og smurbrauðstertum af bestu gerð. Oddný G. Harðardóttir oddviti lista Samfylkingarinnar í suðurkjördæmi tók á móti gestum og stillti sér meðal annars upp í myndatöku með myndarlegu mótorhjólagengi. Í kvöld verður síðan kosningavaka Samfyklkingarinnar að Hafnargötu 90 í Reykjanesbæ og eru allir jafnaðarmenn hjartanlega velkomnir.

Smelltu á efstu mynd í frétt til að skoða albúmið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×