NBA: Utah Jazz á enn möguleika á því að ná Lakers Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2013 07:06 Al Jefferson hjá Utah Jazz. Mynd/AP
Baráttan um áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppni Vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta heldur áfram alveg fram í síðasta leik eftir að Utah Jazz vann sinn leik í nótt. Utah er einum sigurleik á eftir Los Angeles Lakers þegar bæði lið eiga enn leik eftir en það nægir Jazz-liðinu að jafna Lakers.Al Jefferson skoraði 22 stig þegar Utah Jazz vann 96-80 útisigur á Minnesota Timberwolves, "Nú ræðst þetta bara í einum leik. Það er stór leikur en við verðum bara að hugsa um það sem við getum stjórnað," sagði Al Jefferson eftir leik. Til að Utah Jazz komist í úrslitakeppnina þarf Jazz-liðið að vinna Memphis í lokaleik sínum á sama tíma og Los Angeles Lakers tapar fyrir Houston Rockets á heimavelli. Bæði lið Utah og Lakers hafa verið á góðu skriði að undanförnu.Kevin Durant var með 29 stig, 8 stoðsendingar og 7 fráköst þegar Oklahoma City Thunder vann 104-95 sigur á Sacramento Kings og tryggði sér með því efsta sætið í Vesturdeildinni. Þetta var fjórði sigur Thunder-liðsins í röð.Carmelo Anthony, J.R. Smith og Raymond Felton hvíldu allir þegar New York Knicks tapaði 95-106 á móti Charlotte Bobcats. Gerald Henderson skoraði 27 stig fyrir Charlotte og Kemba Walker var með 23 stig.Norris Cole vantaði bara eina stoðsendingu í þrennuna (16 stig, 11 fráköst, 9 stoðsendingar) þegar Miami Heat vann 96-95 sigur á Cleveland Cavaliers án þeirra LeBron James, Dwyane Wade, Shane Battier, Chris Bosh, Mario Chalmers og Udonis Haslem.Stephen Curry setti niður sjö þrista og skoraði alls 35 stig þegar Golden State Warriors vann 116-106 sigur á San Antonio Spurs. Klay Thompson var með 23 stig fyrir Golden State en Gary Neal skoraði 25 stig fyrir Spurs-liðið sem hvíldi þá Tim Duncan, Tony Parker og Kawhi Leonard.Öll úrslit í NBA-deildinni í nótt: Charlotte Bobcats - New York Knicks 106-95 Orlando Magic - Chicago Bulls 84-102 Cleveland Cavaliers - Miami Heat 95-96 Brooklyn Nets - Washington Wizards 106-101 Detroit Pistons - Philadelphia 76Ers 109-101 Milwaukee Bucks - Denver Nuggets 111-112 Dallas Mavericks - Memphis Grizzlies 97-103 Oklahoma City Thunder - Sacramento Kings 104-95 Minnesota Timberwolves - Utah Jazz 80-96 Phoenix Suns - Houston Rockets 119-112 Golden State Warriors - San Antonio Spurs 116-106
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Sjá meira