Snæfell skoraði sjö síðustu stigin og vann með minnsta mun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. mars 2013 21:42 Jay Threatt skoraði sigurstigið í kvöld. Mynd/Stefán
Snæfellingar eru komnir í 1-0 í einvígi sínu á móti Njarðvík í átta liða úrslitum Dominos-deildar karla eftir dramatískan 79-78 sigur í Stykkishólmi í kvöld. Snæfellingar skoruðu sjö síðustu stigin í leiknum og Njarðvíkingum tókst ekki að skora síðustu tvær og hálfu mínútu leiksins. Jay Threatt skoraði þrjú síðustu stig leiksins af vítalínunni þegar 70 sekúndur voru eftir. Ryan Amaroso skoraði 27 stig og tók 10 fráköst hjá Snæfelli og Jay Threatt var með 22 stig og 9 stoðsendingar. Jón Ólafur Jónsson skoraði 17 stig. Elvar Már Friðriksson var með 35 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar hjá Njarðvík og Marcus Van bætti við 17 stigum og 24 fráköstum. Annar leikur liðanna fer fram í Njarðvík á mánudagskvöldið en Snæfell kemst í undanúrslitin með sigri en sigur Njarðvíkur myndi þýða oddaleik í Stykkishólmi á fimmtudaginn kemur. Njarðvíkingar komust í 10-2 eftir aðeins rúmlega þriggja mínútna leik en Snæfellingar vöknuðu þá af værum blundi, snéru leiknum sér í hag og voru 22-16 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Snæfell var síðan 41-36 yfir í hálfleik þrátt fyrir 22 stig frá Elvari Má Friðrikssyni sem var nánast óstöðvandi í fyrri hálfleiknum. Njarðvíkingar voru komnir yfir í lok þriðja leikhluta en Jón Ólafur Jónsson átti lokaorðið þegar hann setti niður þrist og kom Snæfell í 57-56 fyrir lokaleikhlutann. Snæfell komst fimm stigum yfir í fjórða leikhlutanum, 65-60 en Njarðvíkingar jöfnuðu strax í 65-65 og komust síðan í 78-72 þegar tvær og hálf mínúta var eftir. Snæfellsliðið átti hinsvegar svör og sjö stig í röð kom liðinu einu stigi yfir, 79-78, þegar 70 sekúndur voru eftir. Lokamínútan var æsispennandi en hvorugu liðinu tókst að skora og því fögnuðu heimamenn dramatískum sigri.Snæfell-Njarðvík 79-78 (22-16, 19-20, 16-20, 22-22)Snæfell: Ryan Amaroso 27/10 fráköst, Jay Threatt 22/4 fráköst/9 stoðsendingar, Jón Ólafur Jónsson 17/4 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 6, Sigurður Á. Þorvaldsson 5/4 fráköst/7 stoðsendingar, Ólafur Torfason 2/4 fráköst.Njarðvík: Elvar Már Friðriksson 35/7 fráköst/6 stoðsendingar, Marcus Van 17/24 fráköst, Ólafur Helgi Jónsson 11, Ágúst Orrason 6, Nigel Moore 5/5 fráköst, Friðrik E. Stefánsson 2, Hjörtur Hrafn Einarsson 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira