Erlent

Neitar að hafa myrt kærustuna

Pistorius í réttarsal í morgun
Pistorius í réttarsal í morgun Mynd/AFP
Oscar Pistorius neitar því að hafa myrt Steenkamp kærustu sína af yfirlögðu ráði og mótmælir ákæru þess efnis harðlega í yfirlýsingu sem fjölskylda hans sendi frá sér eftir hádegi í dag.

Í yfirlýsingunni er ekki farið ítarlega út í það hvað það var sem gerðist nákvæmlega á heimilinu í fyrrinótt en gera má ráð fyrir að Pistorius haldi því fram að hann hafi skotið kærustuna til bana fyrir mistök.

Pistorius vottar fjölskyldu og vinum kærstunnar samúð sína. „Hann vill koma á framfæri þökkum til þeirra sem hafa sent honum baráttukveðjur - en fyrst og fremst er hugur hans hjá fjölskyldu og vinum Reeva á þessari hrikalega erfiðu stundu."

Fyrrverandi kærasta hans Jenna Edkins, varði Pistorius á Twitter í dag. „Þið verðið að leyfa honum að tala og segja sína hlið í staðinn fyrir að varpa fram sleggjudómum. Við Oscar höfum verið saman, af og á, í fimm ár og hann hefur aldrei sýnt ofbeldistilburði gagnvart mér eða látið mig óttast um líf mitt."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×