Ljósmyndin var tekin af Jóni Hauki Jóelssyni, en hann var á ferðalagi um Snæfellsnes ásamt vini sínum þegar hann tók mynd af holu í klettavegg við fyrrnefndan helli. Þegar heim var komið og ljósmyndin skoðuð sást glögglega mannvera í forgrunni myndarinnar sem Jón Haukur kannaðist ekki við, en hann ræddi við Vísi í gær.
"Ég þekki engan mann með þessa holningu, og allra síst hef ég tekið mynd af manni sem lítur svona út," segir Jón Haukur og þvertekur fyrir að um sjálfan sig eða ferðafélagann sé að ræða.
Mikið hefur verið rætt um ljósmyndina í tengslum við sýningu þáttarins Mannshvörf á Stöð 2 í fyrrakvöld, þar sem hvarf hins 79 ára gamla Bjarna Matthíasar Sigurðssonar var til umfjöllunar. Hann fór í berjamó á Snæfellsnesi sumarið 1974 og síðan hefur ekkert til hans spurst.
Ljósmyndarinn Lárus segir að jafnvel atvinnumannamyndavélar ráði stundum ekki við jafn mikið bil á birtu og sést á ljósmyndinni og því virðist klettaveggurinn rétt lýstur en maðurinn yfirlýstur, sem gerir það að verkum að hann virðist „glóa".
„Að mínu mati er það engin spurning að þetta er ósköp hefðbundin ljósmynd af manni sem stóð þarna á þeim tíma sem myndin var tekin, en auðvitað vil ég ekki fullyrða hundrað prósent um það hvernig hún var tekin, án þess að hafa verið á staðnum sjálfur. En þetta er þó mitt álit og ég er ekki í nokkrum vafa um að maðurinn á ljósmyndinni er raunverulegur."
Lárus tók tvær ljósmyndir til að sýna fram á það hvernig sjálfvirkar myndavélar geta hegðað sér, að því virðist, handahófskennt. Sjónarhornið er það sama, sem og ljósopið, en myndirnar eru teknar á mislöngum tíma.

Magnús Skarphéðinsson, formaður Sálarrannsóknarfélags Reykjavíkur, vildi ekki afskrifa þann möguleika að ljósmyndin væri af raunverulegri afturgöngu og vildi ræða nánar við Jón.
„Ég er þeirrar náttúru gerður að ég trúi yfirleitt frásögnum fólks, og ég starfa við að safna dulrænum reynslusögum. Ég trúi Jóni Jóelssyni, en ég þyrfti að ræða betur við hann til þess að útiloka nokkra möguleika."