Perez Hilton líkti Grétu við Taylor Swift Marín Manda skrifar 11. júní 2013 07:00 „
Ég held að hann sé bara að líkja mér við Taylor Swift út af öllum þessum ástarlögum sem hún hefur samið,“ segir Gréta Karen Grétarsdóttir söngkona, sem á dögunum vakti athygli stjörnubloggarans Perez Hilton. Hilton birti myndband af Grétu Karen á vinsælli síðu sinni, Perezhilton.com, þar sem hún syngur lagið „Nothing“. Þar líkir hann Grétu Karen við söngkonuna heimsfrægu Taylor Swift og hrósar laginu sjálfu hástert. Lagið samdi Gréta Karen ásamt Daniel Capellaro en nú hafa um 114 þúsund manns skoðað myndbandið á Youtube. Grétu hefur verið líkt við Adele, Lana Del Rey og nú Taylor Swift. Lagið fjallar um ástarsorg og hvernig komast eigi yfir hana. Gréta Karen hefur verið búsett í Los Angeles í rúmlega fjögur ár þar sem hún hefur stundað tónlistarnám við Musicians Institute. Undanfarið hefur hún verið að semja nýja tónlist en einnig hefur hún verið að syngja inn á kvikmyndir. Ber þar að nefna kvikmyndina Theo, þar sem leikarar á borð við Miru Sorvino og Dakotu Johnson eru í aðalhlutverkum. Aðspurð segist Gréta vera ansi hissa á þessari athygli. „Ég kíkti inn á Twitter-reikninginn minn og sá þá tíst um þetta þar sem ég var „tögguð“. Það tók mig þó smá stund að fatta að þetta væri inni á síðunni hans. Það var svolítið skemmtileg fyrirsögn á færslunni, „Sometimes less is more“, en ég er voðalega hissa á þessu öllu saman,“ segir Gréta Karen og bætir við að hún sé alveg með fæturna niðri á jörðinni þrátt fyrir athyglina síðustu daga. Hún stefnir ekki heim í nánustu framtíð en saknar einna helst að fá sér SS pylsu og lakkrís.
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi Lífið Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Áskorun Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Lífið Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Fleiri fréttir Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Sjá meira