Handbolti

Tvis Holstebro komst í 16-liða úrslit Evrópukeppni bikarhafa

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Rut Jónsdóttir
Rut Jónsdóttir MYND/HEIMASÍÐA TVIS HOLSTEBRO
Tvis Holstebro komst áfram í 16-liða úrslit Evrópukeppni bikarhafa í handbolta í dag þrátt fyrir að hafa tapað 29-26 gegn Hvít-rússneska liðinu BNTU BelAZ Minsk Region.

Tvis Holstebro vann fyrri leik liðanna örugglega 31-22 í gær. Danska liðið leiddi 16-14 í hálfleik í dag en gestirnir náðu að snúa taflinu við í seinni hálfleik. Rut Jónsdóttir komst ekki á blað í einvíginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×