Eitt brýnasta hagsmunamálið framundan Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. febrúar 2013 12:20 Katrín Júlíusdóttir kynnti stöðu mála fyrir ríkisstjórninni í morgun. Mynd/ Valli.
Teiknaðar hafa verið sviðsmyndir af því hvaða áhrif losun fjármagnshafta og nauðasamningar þrotabúa bankanna geti haft á íslenskan fjármálastöðugleika. Samráðsnefnd um fjármálastöðugleika hefur verið virkjuð. Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, greindi frá þessu á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. „Við erum búin að vera að teikna sviðsmyndir af stöðunni, hvernig við gætum leyst málin fram í tímann og hvernig við gætum varið íslenska hagsmuni sem best án þess að brjóta lög eða þjóðréttarlegar skuldbindingar okkar. Og hvaða áhrif útflæði á fjármunum mun hafa á fjármálastöðugleikann, samkvæmt ólíkum sviðsmyndum," segir Katrín sem bætir því jafnframt við að þarna sé um að ræða eitt brýnasta hagsmunamál íslensku þjóðarinnar. „Nú er komið að ákveðnum vendipunkti í því. Nú þarf að fara að byggja á þessari mynd sem er komin í þessari stöðu og fara í aktívar aðgerðir til að leysa þessi mál," segir Katrín. „Við erum búin að virkja aftur stýrinefnd um losun fjármagnshafta," segir Katrín. Hún sjálf stýrir nefndinni en auk hennar sitja í nefndinni seðlabankastjóri, atvinnu- og nysköpunarráðherra og forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Katrín tekur skýrt fram að það verði engar reglur gefnar út af hálfu Seðlabankans sem heimili undanþágur til uppgjörs þrotabúanna án þess að stýrinefndin hafi farið yfir þær. Katrín segist ekkert geta sagt til um það hvort það geti orðið að nauðarsamningum þrotabúanna á þessu ári. „Það fer allt eftir því hvenær við erum tilbúin til að veita undanþágurnar og hvenær menn eru komnir á einhverja niðurstöðu um að þetta muni ekki hafa þann áhrif á fjármálastöðugleika að þetta muni allt skella á íslenskum heimilum og fyrirtækum af einhverjum krafti," segir Katrín. Þá tekur Katrín fram að hún hafi lagt áherslu á að halda öðrum stjórnmálaflokkum upplýstum um gang mála. „Sama hver verður hér í fjármálaráðuneytinu að loknum kosningum, að þá er lílklegt að viðkomandi muni þurfa að taka ákvörðun í málinu og þá er mikilvægt að viðkomandi þekki málið vel," segir hún.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Happy Hydrate seldi fyrir 302 milljónir Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira