Tryggvi Pétursson: Verið að beita „sóðalegum“ aðferðum Magnús Halldórsson skrifar 18. febrúar 2013 18:30
Harðvítugar deilur milli Tryggva Péturssonar fjárfestis og félagsins IGV teygja anga sína til Lúxemborgar og Bandaríkjanna, þar sem Tryggvi hefur verið dæmdur í einkamáli fyrir að færa tugir milljóna úr einkasjóði á eigin reikning. Hann neitar alfarið sök og segist vera órétti beittur. Dómstóll í Kaliforníu dæmdi fyrir um þremur vikumTryggva Pétursson fjárfesti til þess að greiða félagi sem hann starfaði áður fyrir ríflega 100 milljónir króna króna, eða um 800 þúsund dali. Tryggva var stefnt af félaginu IGV, eða Icelandic Genomic Ventures Holding, sem er í eigu 130 fjárfesta, að mestu íslenskra einstaklinga og fyrirtækja. Í stefnunni fyrir dómstólnum í Bandaríkjunum er Tryggvi sakaður um þjófnað, og að hafa beinlínis stolið tæplega 700 þúsund dölum, 90 milljónum króna, úr sjóðum IGV, í október 2011, og fært þá á reikning í eigin nafni í Lúxemborg. Tryggvi neitar alfarið sök, og segist órétti beittur, og að hann hafi ekki haft bolmagn til þess að verja sig fyrir dómstólnum í Bandaríkjunum. Hann hafi haft heimild til þess að fá greitt frá félaginu á grundvelli samnings sem hann var með. „Ég er í tvígang búinn að bjarga þessum sjóði og hef lagt mig fram um að sinna mínum störfum vel, og neita því algjörlega að hafa brotið lög [...]Sp. blm. Hvernig horfa málin þá við þér, er verið að reka þig í gjaldþrot? Það er verið að beita sóðalegum aðferðum, verið að bera ljúgvitni upp á mig, hálfsannleika. [...] Þetta getur endað með því að ég verði keyrðu í gjaldþrot, já." Stjórnarformaður móðurfélags IGV er Gísli Hjálmtýsson, framkvæmdastjóri eigna- og sjóðstýringafélagsins Thule Investments. Gísli vildi ekki veita fréttastofu viðtal þegar eftir því var leitað, en sagði málin hafa sinn framgang fyrir dómstólum. Tryggvi hefur kært Gísla til sérstaks saksóknara, vegna meintra umboðssvika, en sérstakur saksóknari hefur ekki tekið málið til rannsóknar, þar sem ekki var talin ástæða til eða rökstuddur grunur um lögbrot. IGV á meðal annars um fjögur prósent eignarhlut í líftæknifyrirtækinu Genomatica, sem fékk nýsköpunarverðlaun Wall Street Journal í október í fyrra. Allar eignir Tryggva í Lúxemborg hafa verið frystar, og kyrrsetningarbeiðni frá IGV, upp á um 130 milljónir króna, bíður þess að verða tekin fyrir í héraðsdómi, en Sýslumaðurinn í Reykjavík hafnaði kröfu IGV í fyrstu.
Mest lesið „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Happy Hydrate seldi fyrir 302 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Sjá meira