Stórstjörnur á leiðinni til landsins Stefán Árni Pálsson skrifar 25. nóvember 2013 14:01 Sir Michael Gambon, Sofie Gråbøl og Stanley Tucci.
Tökur á fyrstu seríu af sjónvarpsþáttunum Fortitude munu hefjast hér á landi í febrúar á næsta ári en þættirnir eru samstarfsverkefni sjónvarpsstöðvanna Sky Atlantic í Bretlandi og Starz í Bandaríkjunum. Alls verða teknir upp þrettán þættir og fara tökur aðallega fram á Reyðarfirði og Eskifirði. Nú hefur verið ráðið í hlutverk í þættinum og eru þrjár vel þekktar stjörnur á leiðinni til landsins til að leika í þáttunum. Sir Michael Gambon, Sofie Gråbøl og Stanley Tucci fara með aðalhlutverkin. Tökurnar eru mjög umsvifamiklar því allar útisenur í þáttunum verða teknar á Íslandi. Af þeim sökum mun tökulið þáttanna dvelja hér á landi í margar vikur. Serían fjallar um smábæinn Fortitude sem er talinn vera einn öruggasti bær í heimi þangað til vísindamaður í bænum er myrtur og allir liggja undir grun. Glæpurinn setur allt á annan endann í Fortitude og enginn er óhultur. Þættirnir eiga að gerast í bæ á heimskautasvæði að vetrarlagi og því Ísland kjörstaður fyrir upptökur. Þættirnir verða sýndir á Sky Atlantic HD og Starz á næsta ári. Sir Michael Gambon er mest þekktur fyrir hlutverk sín í Harry Potter kvikmyndunum en þar fer hann með hlutverk Albus Dumbledore. Sofie Gråbøl fór með aðalhlutverkið í dönsku þáttunum Forbrydelsen og Stanley Tucci hefur leikið í fjölda kvikmynda í Hollywood.
Tengdar fréttir Bresk/bandarísk sjónvarpssería tekin upp á Reyðarfirði Sjónvarpsþáttaserían Fortitude verður tekin upp á Íslandi eftir áramót. 7. nóvember 2013 09:15 Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Fleiri fréttir Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Sjá meira
Bresk/bandarísk sjónvarpssería tekin upp á Reyðarfirði Sjónvarpsþáttaserían Fortitude verður tekin upp á Íslandi eftir áramót. 7. nóvember 2013 09:15