Reykjalundur fyrir þig og mig Ragnheiður Ríkharðsdóttir skrifar 1. nóvember 2013 06:00 Flestir Íslendingar vilja standa vörð um rétt allra landsmanna til að njóta góðrar og öflugrar heilbrigðisþjónustu, óháð búsetu og efnahag. Heilbrigðiskerfið er mikilvægasti hlekkur velferðar og við erum sammála um að ríkisvaldið beri ábyrgð á fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar. En við erum kannski ekki öll talsmenn þess að kosti fjölbreyttra rekstrarforma eigi að nýta til þess að ná árangri jafnt í þjónustu við fólkið og hagkvæmni í rekstri. Á Reykjalundi í Mosfellsbæ er rekin stærsta endurhæfingarmiðstöð Íslands, endurhæfingarmiðstöð í eigu SÍBS, og tók hún til starfa árið 1945 og hefur verið rekin allar götur síðan. Þjónustusamningur um starfsemina er gerður við Sjúkratryggingar Íslands en meginbakhjarl starfseminnar hefur verið í gegnum tíðina Happdrætti SÍBS. En annar dyggur bakhjarl Reykjalundar í gegnum árin er Styrktar- og sjúkrasjóður verslunarmanna og félagar þar eru hvatamenn að stofnun hollvinasamtakanna. Á Reykjalundi er rekin afar merkileg starfsemi sem er kannski ekki mörgum kunn utan þeirra sem þar hafa notið margvíslegrar þjónustu. Þar vinna um 200 manns í 160 stöðugildum og árlega njóta um 1.200 sjúklingar endurhæfingar í fjórar til átta vikur í senn og á göngudeild Reykjalundar koma fjögur til fimm þúsund manns á hverju ári, alls staðar að af landinu. Á Reykjalundi hafa þúsundir einstaklinga náð heilsu á ný eftir áföll af ýmsu tagi og er meðalaldur þeirra sem þangað sækja einungis um fimmtíu ár. Starfsemin á Reykjalundi er í raun þjónusta í þína þágu á hvaða aldri sem þú ert. Því er það ljóst að Reykjalundur gegnir gífurlega mikilvægu samfélagshlutverki í endurhæfingu sem gerir einstaklingum kleift að komast aftur út á vinnumarkaðinn og verða virkir í samfélaginu á nýjan leik. Að undanförnu hefur komið saman hópur fólks, m.a. þeir sem notið hafa endurhæfingar á Reykjalundi og aðrir velunnarar með hlýjar taugar til starfseminnar undir Helgafelli í Mosfellsbæ, til að undirbúa stofnun hollvinasamtaka Reykjalundar sem verða stofnuð formlega á hátíðarfundi að Reykjalundi laugardaginn 2. nóvember. Ég ætla að verða hollvinur Reykjalundar og vona að það viljir þú líka. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Sjá meira
Flestir Íslendingar vilja standa vörð um rétt allra landsmanna til að njóta góðrar og öflugrar heilbrigðisþjónustu, óháð búsetu og efnahag. Heilbrigðiskerfið er mikilvægasti hlekkur velferðar og við erum sammála um að ríkisvaldið beri ábyrgð á fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar. En við erum kannski ekki öll talsmenn þess að kosti fjölbreyttra rekstrarforma eigi að nýta til þess að ná árangri jafnt í þjónustu við fólkið og hagkvæmni í rekstri. Á Reykjalundi í Mosfellsbæ er rekin stærsta endurhæfingarmiðstöð Íslands, endurhæfingarmiðstöð í eigu SÍBS, og tók hún til starfa árið 1945 og hefur verið rekin allar götur síðan. Þjónustusamningur um starfsemina er gerður við Sjúkratryggingar Íslands en meginbakhjarl starfseminnar hefur verið í gegnum tíðina Happdrætti SÍBS. En annar dyggur bakhjarl Reykjalundar í gegnum árin er Styrktar- og sjúkrasjóður verslunarmanna og félagar þar eru hvatamenn að stofnun hollvinasamtakanna. Á Reykjalundi er rekin afar merkileg starfsemi sem er kannski ekki mörgum kunn utan þeirra sem þar hafa notið margvíslegrar þjónustu. Þar vinna um 200 manns í 160 stöðugildum og árlega njóta um 1.200 sjúklingar endurhæfingar í fjórar til átta vikur í senn og á göngudeild Reykjalundar koma fjögur til fimm þúsund manns á hverju ári, alls staðar að af landinu. Á Reykjalundi hafa þúsundir einstaklinga náð heilsu á ný eftir áföll af ýmsu tagi og er meðalaldur þeirra sem þangað sækja einungis um fimmtíu ár. Starfsemin á Reykjalundi er í raun þjónusta í þína þágu á hvaða aldri sem þú ert. Því er það ljóst að Reykjalundur gegnir gífurlega mikilvægu samfélagshlutverki í endurhæfingu sem gerir einstaklingum kleift að komast aftur út á vinnumarkaðinn og verða virkir í samfélaginu á nýjan leik. Að undanförnu hefur komið saman hópur fólks, m.a. þeir sem notið hafa endurhæfingar á Reykjalundi og aðrir velunnarar með hlýjar taugar til starfseminnar undir Helgafelli í Mosfellsbæ, til að undirbúa stofnun hollvinasamtaka Reykjalundar sem verða stofnuð formlega á hátíðarfundi að Reykjalundi laugardaginn 2. nóvember. Ég ætla að verða hollvinur Reykjalundar og vona að það viljir þú líka.
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar