Allir dagar eru öryggisdagar Reynir Jónsson skrifar 1. nóvember 2013 06:00 Öryggisdagar Strætó og VÍS hefjast í dag. Þetta er í fjórða sinn sem dagarnir eru haldnir og reynslan sýnir, svo ekki verður um villst, að átak sem þetta skilar verulegum árangri. Árið 2010 voru skráð 157 aksturstjón hjá Strætó, en árið 2012 hafði þeim fækkað niður í 73, eða um rúmlega helming. Þetta sýnir okkur að þegar allir leggjast á eitt við að fækka slysum, þá fækkar þeim. Árangurinn er enn eftirtektarverðari í ljósi þess að árið 2012 óku vagnar Strætó mun fleiri kílómetra á götum höfuðborgarsvæðisins en árið 2010, þjónustutími var lengri og farþegum hafði fjölgað mikið. Fækkun slysa á sama tíma ber því vott um þann góða árangur sem vagnstjórar hafa náð þegar kemur að öryggi í umferðinni. En umferðaröryggi er ekki átaksverkefni. Við þurfum að sýna árvekni og vinna saman að því að fækka slysum alla daga ársins. Þar ganga atvinnubílstjórar á undan með góðu fordæmi og vagnstjórar Strætó hafa sýnt það á síðustu árum að hægt er að fækka slysum. Við getum verið stolt af þeim árangri sem náðst hefur, en um leið er möguleiki á að gera enn betur. Það má þó ekki gleyma því að við berum öll ábyrgð í umferðinni. Fækkun slysa verður trauðla náð nema allir ökumenn leggist á eitt. Við munum gera okkar, en við biðlum til allra um að taka þátt í þessu verkefni með okkur. Við biðjum ykkur um að virða forgang Strætó og sýna því skilning þegar vagnar þurfa að komast út af biðstöðvum og inn í umferðina á ný. Aukinn skilningur okkar allra í umferðinni er forsenda þess að við getum fækkað slysum, ekki síst í ljósi þess að umferðin eykst ár frá ári. Við erum öll hluti af þeirri umferð og sem samfélag þurfum við öll að taka ábyrgð. Strætó bs. og VÍS munu huga að öryggismálum næsta mánuðinn. Við munum gefa skilaboð til starfsfólks okkar, farþeganna, en einnig annarra í umferðinni. Vertu með okkur í átakinu og gerum alla daga að öryggisdögum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Freyja Þórisdóttir Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson Skoðun Skoðun Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Sjá meira
Öryggisdagar Strætó og VÍS hefjast í dag. Þetta er í fjórða sinn sem dagarnir eru haldnir og reynslan sýnir, svo ekki verður um villst, að átak sem þetta skilar verulegum árangri. Árið 2010 voru skráð 157 aksturstjón hjá Strætó, en árið 2012 hafði þeim fækkað niður í 73, eða um rúmlega helming. Þetta sýnir okkur að þegar allir leggjast á eitt við að fækka slysum, þá fækkar þeim. Árangurinn er enn eftirtektarverðari í ljósi þess að árið 2012 óku vagnar Strætó mun fleiri kílómetra á götum höfuðborgarsvæðisins en árið 2010, þjónustutími var lengri og farþegum hafði fjölgað mikið. Fækkun slysa á sama tíma ber því vott um þann góða árangur sem vagnstjórar hafa náð þegar kemur að öryggi í umferðinni. En umferðaröryggi er ekki átaksverkefni. Við þurfum að sýna árvekni og vinna saman að því að fækka slysum alla daga ársins. Þar ganga atvinnubílstjórar á undan með góðu fordæmi og vagnstjórar Strætó hafa sýnt það á síðustu árum að hægt er að fækka slysum. Við getum verið stolt af þeim árangri sem náðst hefur, en um leið er möguleiki á að gera enn betur. Það má þó ekki gleyma því að við berum öll ábyrgð í umferðinni. Fækkun slysa verður trauðla náð nema allir ökumenn leggist á eitt. Við munum gera okkar, en við biðlum til allra um að taka þátt í þessu verkefni með okkur. Við biðjum ykkur um að virða forgang Strætó og sýna því skilning þegar vagnar þurfa að komast út af biðstöðvum og inn í umferðina á ný. Aukinn skilningur okkar allra í umferðinni er forsenda þess að við getum fækkað slysum, ekki síst í ljósi þess að umferðin eykst ár frá ári. Við erum öll hluti af þeirri umferð og sem samfélag þurfum við öll að taka ábyrgð. Strætó bs. og VÍS munu huga að öryggismálum næsta mánuðinn. Við munum gefa skilaboð til starfsfólks okkar, farþeganna, en einnig annarra í umferðinni. Vertu með okkur í átakinu og gerum alla daga að öryggisdögum.
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar