Innlent

Íslensk yfirvöld beita sér í máli Íslendings í Dubai

Snekkja við Abú Dabí þar sem maðurinn hugðist setja á fót snekkjufyrirtæki. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Snekkja við Abú Dabí þar sem maðurinn hugðist setja á fót snekkjufyrirtæki. Myndin tengist fréttinni ekki beint. úr safni
Utanríkisráðherra og forseti Íslands hafa beitt sér í máli rúmlega fertugs Íslendings sem hefur verið ákærður fyrir skjalafals í Sameinuðu arabísku fyrstadæmunum. Maðurinn, sem er sagður snekkjusmiður, gengur laus gegn tveggja milljóna króna tryggingu og hafa yfirvöld þar í landi haldlagt vegabréf hans tímabundið.

Samkvæmt heimildum fréttastofu er málið komið inn á borð Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, þar sem svo virðist sem maðurinn sé beittur miklum órétti af yfirvöldum þar ytra. Þá hefur fréttastofa upplýsingar um það að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, viti einnig af málsatvikum. Svo virðist sem hann sé fórnarlamb óheiðarlegra viðskiptahátta heimamanns.

Málið er svolítið sérkennilegt en fréttavefurinn The National fjallaði um það í gær. Þar kemur fram að Íslendingurinn hafi leitað eftir fjárfesti til að setja á fót fyrirtæki sem smíðar lúxussnekkjur fyrir fjórum árum síðan. Hann fann heimamann sem sagðist hafa áhuga á að vera bakhjarl í fyrirtækinu en með því skilyrði að hann útvegaði honum snekkju til eigin nota.

Það gerði Íslendingurinn og afhenti manninum snekkjuna fyrir tveimur árum. Hann sveik aftur á móti samkomulagið og greiddi ekki krónu fyrir snekkjuna og þegar Íslendingurinn fór fram á að henni yrði skilað neitaði hann að afhenta honum hana. Hann höfðaði því mál á hendur manninum fyrir dómstólum í Dúbaí.

Íslendingurinn vann dómsmálið og var heimamanninum gert að greiða honum 130 milljónir króna. Þetta var árið 2010. Það er eftir að dómurinn er kveðinn upp sem málið tekur aðra stefnu.

Nú nýlega er Íslendingurinn nefnilega sakaður um að hafa falsað dómsskjal og lagt fyrir dóminn, þegar málið var þar til meðferðar fyrir tveimur árum. Hann hefur verið ákærður fyrir að hafa áhrif á málið með ólögmætum hætti. Þessi ásökun virðist koma algjörlega upp úr þurru og neitar Íslendingurinn staðfestlega sök, samkvæmt upplýsingum Vísis.

Ákæran var tekin fyrir hjá dómstólum í gær og er Íslendingurinn laus gegn tryggingu upp á 1,7 milljónir króna. Þá þurfti hann einnig að láta vegabréfið af hendi og hefur verið þinghaldi verið frestað til 29. september.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×