Jón Bjarna: Steingrímur með of mikla einræðistilburði Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 28. ágúst 2012 12:05 Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra. mynd/stefán karlsson
Jón Bjarnason þingmaður Vinstri Grænna segir þingmenn Samfylkingarinnar beita frekju og yfirgangi með því að segja að ESB málið sé stjónarslitamál. VG sé komið langt út frá grunnstefnu sinni með því að keyra ESB umsóknarferlið áfram og honum finnst Steingrímur J Sigfússon formaður flokksins hafa sýnt of mikla einræðistilburði við stjórn flokksins. Jón Bjarnason var gestur Heimis Karlssonar og Kolbrúnar Björnsdóttur í morgunþættinum Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þar ræddi hann um óánægju innan Vinstri grænna aðallega vegna aðildarviðræðna Íslands við ESB. Hann sagði meðal annars VG hafa fært miklar fórnir í ríkisstjórnarsamstarfi sínu með Samfylkingunni og þegar þingmenn hennar, Árni Páll Árnason og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segi að ESB málið sé stjórnarslitamál sé verið að túlka samstarfsyfirlýsingu flokkanna um ESB alltof langt. „Þarna er farið að beita þá bara frekju og yfirgangi, nú fyrir utan það þegar rætt var um að senda þessa umsókn af stað þá átti hún bara að taka tvö ár. Ég held meira að segja að Árni Páll hafi sagt á Alþingi að þessu máli lýkur innan tveggja ára, og þá erum við búin að afgreiða það. En er það nú aldeilis svo," segir Jón. Hann segir forystu flokksins vera komna langt frá grunnstefnu flokksins á þeim forsendum að þarna þurfi samstarf til og það sé ekki samkvæmt stefnu flokksins að keyra Evrópusambandsaðildarviðræður áfram fram að kosningum. Hefur Steingrímur verið með of mikla einræðistilburði? „Já, mér finnst það - ekki nokkur vafi að hann hefur verið það, enda er það einmitt ein af rökunum fyrir því að Atli Gíslason gekk úr flokknum þá rakti hann það að það væri ekki nógu mikil lýðræðisleg vinna innan flokksins og ég tel að þessu þurfi að breyta."Hægt er að hlusta á viðtalið við Jón Bjarnason hér að ofan.
Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Fleiri fréttir Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira