Veturinn kemur á morgun Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. október 2012 15:58 Vestmannaeyjar. Það verður hvasst sunnanlands, en ekki er búist við ofankomu. Mynd/ Óskar P. Friðriksson.
Veturinn kemur á morgun. Þetta staðfestir Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við Vísi. „Það má alveg orða það þannig og það virðast alveg verða umhleypingar í kjölfarið á þessu," segir Óli Þór. Í fréttatilkynningu sem Veðurstofan sendi frá sér í morgun kemur fram að búist er við vondu veðri á Norðurlandi frá og með seinni hluta morgundagsins, með töluverðri ofankomu. Óli Þór segist búast við því að hér sunnanlands verði þurrt, kalt og hvasst. Aftur á móti verði engin ofankoma að ráði. „Það er aldrei hægt að útiloka að það dragist ekki einhver korn hérna yfir hálendið og upp í Borgarfirði og jafnvel í uppsveitir Suðurlands en það ætti að vera minniháttar," segir hann. Óli Þór segir að víðast hvar á landinu, norðanlands, sem sunnanlands verði vindurinn 13-20 metrar á sekúndu. Víðast hvar nær 13 metrunum þó. Óli Þór segir að veðrið núna sé ekki tengt fellibylnum Sandy sem nú er að ganga yfir Bandaríkin. „Það er frekar eitthvað sem gæti komið eftir helgi. Það er hlýr pakki sem gæti komið yfir landið ef spárnar ganga eftir og myndi gefa okkur suðvestanátt," segir hann.
Tengdar fréttir Veðurstofan varar við vonskuveðri Veðurstofan varar við vonskuveðri sem mun ganga yfir landið frá og með morgundeginum. "Eftir miðjan dag á morgun verður komið norðan vonskuveður um landið norðanvert með vindhraða á bilinu 13-20 m/s. Með þessu verður snjókoma og él og getur færð og skyggni spillst á skömmum tíma. Eins ættu menn sem hafa húsdýr úti við að huga að því að koma skepnum í skjól. Búast við mjög hvössum vindhviðum undir Vatnajökli frá því síðdegis á morgun og fram eftir vikunni,“ segir í tilkynningunni. 29. október 2012 11:49 Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitsins ekki áður séð álíka mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira
Veðurstofan varar við vonskuveðri Veðurstofan varar við vonskuveðri sem mun ganga yfir landið frá og með morgundeginum. "Eftir miðjan dag á morgun verður komið norðan vonskuveður um landið norðanvert með vindhraða á bilinu 13-20 m/s. Með þessu verður snjókoma og él og getur færð og skyggni spillst á skömmum tíma. Eins ættu menn sem hafa húsdýr úti við að huga að því að koma skepnum í skjól. Búast við mjög hvössum vindhviðum undir Vatnajökli frá því síðdegis á morgun og fram eftir vikunni,“ segir í tilkynningunni. 29. október 2012 11:49