Verður á brattann að sækja í upphafi móts 16. apríl 2012 06:00 Ásmundur Arnarsson tók við þjálfun Fylkis í haust.
Ásmundur Arnarsson, nýr þjálfari Fylkis, hefur staðið í ströngu á sínu fyrsta undirbúningstímabili með liðið. Meiðsli í leikmannahópnum hafa plagað liðið og hefur Fylkismönnum ekki gengið nógu vel í undirbúningsmótunum nú eftir áramót. Finnur Ólafsson kom frá ÍBV eftir síðasta tímabil og Björgólfur Takefusa frá Víkingi. Báðir eru þó meiddir og ekki leikfærir fyrr en rétt fyrir fyrsta leik tímabilsins í Pepsi-deildinni. Þá eru fleiri meiddir; Þórir Hannesson, Tómas Þorsteinsson og Árni Freyr Guðnason en sá síðastnefndi kom frá ÍR í haust. „Úrslitin tala sínu máli en það sem hefur farið mest í taugarnar á mér er hversu langvarandi þessi meiðslavandræði hafa reynst," sagði Ásmundur við Fréttablaðið. „Finnur og Björgólfur hafa verið í basli vegna hnémeiðsla og fóru báðir í speglunaraðgerð fyrir fáeinum vikum. Þórir og Tómas hafa heldur ekki getað komist almennilega af stað og óvíst hvenær þeir komast aftur á fullt." Ásmundur hefur getað notað unga leikmenn úr röðum Fylkis en það kvarnast meira að segja úr þeim hópi í upphafi móts, vegna góðs árangurs íslenska U-17 liðsins sem tryggði sér á dögunum sæti í úrslitakeppni Evrópumeistaramótsins. Það mót fer fram í upphafi maí. „Hjörtur Hermannsson og Emil Ásmundsson hafa báðir spilað með okkur í vetur. Hjörtur mun fara til PSV í júní í sumar en ætlaði að hjálpa okkur í maí. En góður árangur strákalandsliðsins hefur nú sett strik í reikninginn," sagði Ásmundur en samningar um sölu Hjartar til hollenska stórliðsins PSV Eindhoven tókust nú fyrr í vetur. Hann segir að það sé nóg af góðum efniviði í Árbænum og margir ungir strákar sem hafa öðlast dýrmæta reynslu með liðinu í vetur. En Ásmundur neitar því ekki að hann hafi áhyggjur af stöðu leikmannahópsins. „Jú, auðvitað hef ég áhyggjur af því og sjálfsagt verður á brattann að sækja í upphafi móts fyrir okkur. En ég bind vonir við að það muni horfa til betri vegar eftir því sem líður á mótið. Það ætlar sér enginn að taka þátt í fallbaráttu og vonandi tekst okkur að forðast hana."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira