Innlent

Beið sólarupprásar á þaki nýbyggingar

Lögreglan á Suðurnesjum var kölluð út á sunnudagsmorguninn þar sem karlmaður var að spóka sig uppi á þaki á hálfbyggðu iðnaðarhúsnæði. Fylgdi sögunni, að óttast væri að hann væri ölvaður eða í annarlegu ástandi.

Allt kom þetta heim og saman með staðsetningu mannsins, þegar lögregla kom á vettvang. Hann var uppi á nýbyggingunni og tjáði lögreglumönnunum að hann hefði ætlað að fylgjast með sólarupprás. Hann var vinsamlegast beðinn um að finna sér annan og öruggari stað til þess arna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×