Innlent

Túnfiskur veiðist við Ísland

JHH skrifar
Túnfiskseldi.
Túnfiskseldi. Mynd/ Getty
Stafnesið, sem er í eigu Odds Sæmundssonar útgerðarmanns, er nú við túnfiskveiðar um 180-200 sjómílur af landinu. Á föstudag hafði báturinn fengið fjóra fallega fiska í tveimur lögnum og að sögn Útvegsblaðsins voru þeir búnir að leggja línuna í þriðja sinn.

Á vef Útvegsblaðsins segir líka að þetta séu fyrstu túnfiskarnir sem íslenskt skip veiðir í áratug eða meira. Skipstjóri í þessari veiðferð er Gunnlaugur Ævarsson, en útgerðarmaðurinn er annar stýrirmaður og á dekki. Kvóti Íslands í ár er 25 tonn og er Stafnes með hann allan, en einungis er heimilt að úthluta einu skipi veiðiheimildir í einu.

„Þetta eru tveggja metra langir og feitir fiskar, sem hafa greinilega haft það gott í makrílveislunni hér í sumar," segir Jónína Guðmundsdóttir, rekstrarstjóri Helgu ehf, sem gerir Stafnesið út í samtali við Útvegsblaðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×