Innlent

Vísað úr skóla eftir líkamsárás með rörbút

GS skrifar
Mynd/BH
Tveimur nemendum í Menntaskólanum á Ísafirði hefur verið vísað úr skóla tímabundið, vegna rannsóknar á árás þeirra á samnemanda sinn í skólanum í fyrradag. Lögreglurannsókn er haldið áfram.

Atvikið átti sér stað á salerni í skólanum að lokinni kennslustund síðdegis og notaði annar árásarmaðurinn rörbút til að berja á þolandanum, en hinn mun ekki hafa tekið afgerandi þátt í árásinni, þótt hann hafi átt hlut að máli. Þolandinn fór á sjúkrahúsið og fékk þar áverkavottorð, sem lagt var fram með formlegri kæru til lögreglu, sem rannsakar málið og hefur yfirheyrt alla viðkomandi.

Jón Reynir Sigurvinsson skólameistari Menntaskóalns á Ísafirði kallaði alla nemendur á sal í morgun þar sem farið var yfir og tilkynnt um brottvísun piltanna, sem báðir eru undir lögaldri, en báðir yfir sakhæfisaldri, sem er 15 ár.

Jón Reynir sagði í viðtali við Fréttastofuna að þeir, eða forráðamenn þeirra, fengju nú svonefndan andmælarétt í viku, rétt eins og gildir um starfsmenn, sem vikið er úr störfum. Nú til dags þyki algert neyðarúrræði að útskúfa ungmenni frá námi. Piltarnir hafa báðir náð sakhæfisaldri þannig að rannsókn lögreglu er fram haldið með hefðbundnum aðferðum, en þó með aðkomu barnaverndaryfirvalda. Í hliðstæðum málum eru fordæmi fyrir því að fresta ákæru í tvö ár, sem er einskonar hliðstæða við skilorð, hver sem niðurstaðan verður í þessu máli.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×