Vísað úr skóla eftir líkamsárás með rörbút GS skrifar 17. október 2012 13:15 Mynd/BH
Tveimur nemendum í Menntaskólanum á Ísafirði hefur verið vísað úr skóla tímabundið, vegna rannsóknar á árás þeirra á samnemanda sinn í skólanum í fyrradag. Lögreglurannsókn er haldið áfram. Atvikið átti sér stað á salerni í skólanum að lokinni kennslustund síðdegis og notaði annar árásarmaðurinn rörbút til að berja á þolandanum, en hinn mun ekki hafa tekið afgerandi þátt í árásinni, þótt hann hafi átt hlut að máli. Þolandinn fór á sjúkrahúsið og fékk þar áverkavottorð, sem lagt var fram með formlegri kæru til lögreglu, sem rannsakar málið og hefur yfirheyrt alla viðkomandi. Jón Reynir Sigurvinsson skólameistari Menntaskóalns á Ísafirði kallaði alla nemendur á sal í morgun þar sem farið var yfir og tilkynnt um brottvísun piltanna, sem báðir eru undir lögaldri, en báðir yfir sakhæfisaldri, sem er 15 ár. Jón Reynir sagði í viðtali við Fréttastofuna að þeir, eða forráðamenn þeirra, fengju nú svonefndan andmælarétt í viku, rétt eins og gildir um starfsmenn, sem vikið er úr störfum. Nú til dags þyki algert neyðarúrræði að útskúfa ungmenni frá námi. Piltarnir hafa báðir náð sakhæfisaldri þannig að rannsókn lögreglu er fram haldið með hefðbundnum aðferðum, en þó með aðkomu barnaverndaryfirvalda. Í hliðstæðum málum eru fordæmi fyrir því að fresta ákæru í tvö ár, sem er einskonar hliðstæða við skilorð, hver sem niðurstaðan verður í þessu máli.-
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Fleiri fréttir 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Sjá meira