Ekki hægt að lækka gjöld fyrir Hörpu 18. ágúst 2012 08:30 Styr hefur staðið um rekstur Hörpu, en árleg fasteignagjöld eru rúmlega tvöfalt hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Fréttablaðið/GVA
Reykjavíkurborg getur ekki gefið Hörpu afslátt af fasteignagjöldum eins og Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Portusar, eignarhaldsfélags Hörpu, kallaði eftir í Fréttablaðinu fyrr í vikunni. Þetta segir aðstoðarmaður borgarstjóra. Árleg fasteignagjöld Hörpu eru 380 milljónir, en áætlanir rekstrarfélagsins gerðu ráð fyrir að greiða um 180 milljónir árlega. „Álagning fasteignagjalda er ekki geðþóttaákvörðun,“ segir S. Björn Blöndal, aðstoðarmaður borgarstjóra, í samtali við Fréttablaðið. „Þar gengur eitt yfir alla. Harpa er mjög stórt hús sem borgar fasteignagjöld í samræmi við það.“ Mismunurinn milli áætlana og þess sem svo varð, skýrist af því að miðað var við svokallað rekstrarvirði og vísað í fordæmi Smáralindarinnar. Björn segir að það vinnulag hafi verið borið undir yfirfasteignamatsnefnd sem skar úr um að slíkt væri ekki heimilt. „Þess vegna er álagningin með þessum hætti. Það má líka taka fram að á öllum stigum málsins bentu fulltrúar borgarinnar á að afar ólíklegt væri að þetta stæðist.“ Pétur sagði í vikunni að ef ekki næðust samningar um að létta fasteignagjöldum af Hörpu gætu eigendur hússins, ríki og borg, þurft að taka yfir reksturinn. Björn sagði engar slíkar viðræður hafa átt sér stað. „Ég sé ekki að það bæti neitt að ríki og borg taki þetta yfir. Verkefnið er nú að sjá hvort hægt sé að gera breytingar á rekstrinum til að loka þessu gati sem er. Við þurfum að vinna í því núna.“ - þj
Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira