Skoðun

Upprifjun – aðvörun

Sverrir Hermannsson skrifar
Fyrir mjög margt löngu gisti undirritaður á gömlu hóteli í Kaupmannahöfn byggðu úr trjáviði, feyskið orðið. Þar rakst hann á aðvörun svohljóðandi ef ske kynni að eldur yrði laus: ?Ved ildebrand bevar ro og omtanke. Gå hen til vinduet og giv dem til kende overfor brandvæsenet på en behersket måde.?

Þessi tímabæra ráðlegging rifjaðist upp þegar þeir í Kastljósi áttust við, ráðherra atvinnumála og forseti ASÍ.

Á íslenzku gæti danska aðvörunin hljómað þessu líkt: ?Við uppreisn í atvinnumálum varðveitið rósemd og íhygli. Gangið fyrir Sjónvarp í hógværð og sýnið áhorfendum yfirvegun og sjálfstjórn.?




Skoðun

Skoðun

Blaður 35

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Sjá meira


×