Hækkun lána óbreytanlegt ástand? Birkir Jón Jónsson og Vigdís Hauksdóttir skrifar 14. desember 2012 06:00 Það er niðurdrepandi fyrir fólk að horfa upp á lán sín hækka mánuð eftir mánuð þrátt fyrir að standa samviskusamlega við afborganir sínar hver mánaðamót. Þau úrræði sem skuldugum heimilum hafa boðist frá hruni eru bara frestun á vandanum eins og frysting lána. Það er verið að lengja í ólinni fyrir marga í samfélaginu. Það er engin lausn að frysta lán ef höfuðstóllinn hækkar um hver mánaðamót. Framsóknarmenn leggja áherslu á málefni skuldugra heimila. Við höfum lagt fram mál sem tekur á afnámi verðtryggingar í þrepum og hvernig við getum nýtt skattkerfið til að skapa hvata svo að fólk geti lækkað höfuðstólinn af stökkbreyttum, verðtryggðum lánum sínum. Við höfum fundið fyrir jákvæðni frá þingmönnum annarra flokka í garð tillaga Framsóknar um málefni heimilanna, þrátt fyrir aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar.Bjartari tímar Vonandi getum við náð samstöðu á Alþingi um að koma þeim í framkvæmd hið fyrsta eftir kosningar. Þá eigum við bjartari tíma fyrir höndum og við eru sannfærð um að þeir eru fyrir höndum, en þá þurfum við líka að fara að taka okkur til og nýta þau tækifæri sem eru fyrir hendi í samfélaginu. Það er því spurning til kjósenda í vor hvort hugmyndir Framsóknar um 4% þak á verðtryggingu sem byrjun á afnámi verðtryggingar og notkun skattkerfisins sem hvata geti leitt til þess að við náum meiri sátt fyrir það fólk sem hefur orðið algjörlega útundan í lausn á vanda skuldugra heimila eftir efnahagshrunið 2008. Eins og fram hefur komið oft hefur störfum á Íslandi fækkað á undangengnum árum. Fólk er að hverfa af vinnumarkaðnum, fólk er að fara af atvinnuleysisbótum yfir á sveitarfélögin í landinu og það er líka að hverfa úr landi. Staðreyndin er sú að við erum einungis 320 þúsund manna þjóð en höfum allar þessar auðlindir. Við erum með fiskinn, olíuna, orkuna, náttúruna og mannauðinn, mjög vel menntað fólk. Það á ekki að vera gríðarlega flókið mál að reka samfélag þar sem búa 320 þúsund manns með allar þessar auðlindir. Við erum gríðarlega rík þjóð og nú er svo komið að við þurfum að einhenda okkur í það verkefni að nýta þau tækifæri sem blasa við okkur, á sem flestum stöðum. Við þurfum öll að hafa atvinnu og geta séð fyrir okkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Sjá meira
Það er niðurdrepandi fyrir fólk að horfa upp á lán sín hækka mánuð eftir mánuð þrátt fyrir að standa samviskusamlega við afborganir sínar hver mánaðamót. Þau úrræði sem skuldugum heimilum hafa boðist frá hruni eru bara frestun á vandanum eins og frysting lána. Það er verið að lengja í ólinni fyrir marga í samfélaginu. Það er engin lausn að frysta lán ef höfuðstóllinn hækkar um hver mánaðamót. Framsóknarmenn leggja áherslu á málefni skuldugra heimila. Við höfum lagt fram mál sem tekur á afnámi verðtryggingar í þrepum og hvernig við getum nýtt skattkerfið til að skapa hvata svo að fólk geti lækkað höfuðstólinn af stökkbreyttum, verðtryggðum lánum sínum. Við höfum fundið fyrir jákvæðni frá þingmönnum annarra flokka í garð tillaga Framsóknar um málefni heimilanna, þrátt fyrir aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar.Bjartari tímar Vonandi getum við náð samstöðu á Alþingi um að koma þeim í framkvæmd hið fyrsta eftir kosningar. Þá eigum við bjartari tíma fyrir höndum og við eru sannfærð um að þeir eru fyrir höndum, en þá þurfum við líka að fara að taka okkur til og nýta þau tækifæri sem eru fyrir hendi í samfélaginu. Það er því spurning til kjósenda í vor hvort hugmyndir Framsóknar um 4% þak á verðtryggingu sem byrjun á afnámi verðtryggingar og notkun skattkerfisins sem hvata geti leitt til þess að við náum meiri sátt fyrir það fólk sem hefur orðið algjörlega útundan í lausn á vanda skuldugra heimila eftir efnahagshrunið 2008. Eins og fram hefur komið oft hefur störfum á Íslandi fækkað á undangengnum árum. Fólk er að hverfa af vinnumarkaðnum, fólk er að fara af atvinnuleysisbótum yfir á sveitarfélögin í landinu og það er líka að hverfa úr landi. Staðreyndin er sú að við erum einungis 320 þúsund manna þjóð en höfum allar þessar auðlindir. Við erum með fiskinn, olíuna, orkuna, náttúruna og mannauðinn, mjög vel menntað fólk. Það á ekki að vera gríðarlega flókið mál að reka samfélag þar sem búa 320 þúsund manns með allar þessar auðlindir. Við erum gríðarlega rík þjóð og nú er svo komið að við þurfum að einhenda okkur í það verkefni að nýta þau tækifæri sem blasa við okkur, á sem flestum stöðum. Við þurfum öll að hafa atvinnu og geta séð fyrir okkur.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar