Tónlist

Túrandi ættarmót

Hressandi fjölskyldusveit Árni og Lóa ásamt syni sínum Fróða, fjögurra mánaða, Örvar með dóttur sinni Öldu, fjögurra ára, og Árni Vilhjálmsson með Agnesi dóttur sinni, 11 mánaða. Á myndina vantar feðgana Borkó og Hjalta sem eru búsettir á Drangsnesi. Fréttablaðið/vilhelm
Hressandi fjölskyldusveit Árni og Lóa ásamt syni sínum Fróða, fjögurra mánaða, Örvar með dóttur sinni Öldu, fjögurra ára, og Árni Vilhjálmsson með Agnesi dóttur sinni, 11 mánaða. Á myndina vantar feðgana Borkó og Hjalta sem eru búsettir á Drangsnesi. Fréttablaðið/vilhelm
Meðlimir hljómsveitarinnar FM Belfast standa á tímamótum, en danssveitin er aftur komin á kreik eftir barneignaleyfi undanfarna mánuði. Þeir eru sammála um að fjölskyldulífið breyti tónleikaflakkinu, en halda hins vegar ótrauðir áfram.

Við höfum verið að vinna með UNICEF fyrir dag Rauða nefsins sem var í gær. Við gerðum lag sem heitir Öll í kór. Þetta var mjög skemmtileg vinna. Við fengum fjórtán gestasöngvara til þess að syngja með okkur. Við gerðum líka myndband við lagið ásamt Saga Film.

Nýkomin heim frá útlöndum, hvar voruð þið að spila?

Við vorum Bern í Sviss. Spiluðum þar í partíi fyrir fatabúð þar sem nefnist Fizzen. Hún átti 20 ára afmæli. Skemmtilegast þótti okkur að fá fondue og raclette (raclette er tegund af osti sem þeir bræða yfir brauð, kjöt eða kartöflur). Vissuð þið að það er hægt að fá McRaclette á McDonalds í Sviss? Þeir segja að það sé jafnvel betra en Big Mac.

Nú eru þið öll orðin fjölskyldufólk, hefur það ekki áhrif á tónleikaflakkið um heiminn?

Já, það hefur alls konar áhrif. Í fyrsta lagi höfum við lítið farið út að spila undanfarna mánuði þar sem flest okkar hafa verið í barneignarleyfi. Þetta mun svo líklega hafa þau áhrif að við förum í styttri ferðir fyrst um sinn. Við erum satt að segja enn að finna út hvernig við viljum gera þetta. Þetta mun allt saman koma í ljós smám saman.

Koma börnin kannski bara með? Ef þau koma með, hvernig líkar þeim tónleikalífið?

Fyrsta ferð Fróða, sonar Árna og Lóu, var til Sviss um daginn. Hann er fæddur til að ferðast eins og Agnes, dóttir Árna Vil, sem stóð sig með prýði á tónleikaferð í Berlín í sumar. Alda dóttir Örvars hefur líka komið með í ferðir og fór í fyrsta skipti á svið eins árs. Þau munu svo örugglega tjá sig eitthvað um tónleikalífið þegar þau byrja að tala. Þau eru hins vegar frekar róleg yfir þessu eins og er.

Koma kannski makar með líka?

Já, já, makar, barnapíur, systkini, foreldrar og vonandi einhvern tímann ömmur og afar. Við erum túrandi ættarmót.

Hefur eitthvað breyst við það að danssveitin varð fjölskyldusveit? Erfiðara að dansa fram undir morgun uppi á sviði?

Jú, það er mun erfiðara að dansa fram undir morgun. Meirihluti meðlima er með einhvern verk í mjöðmunum sem þeir hafa ekki fundið fyrir áður. En við höfum brugðist við þessu með því að gera hreyfingar sem hafa lítil líkamleg áhrif á okkur. Flest okkar eru líka á leiðinni í pilates eða hot yoga til þess að liðka limina.

Hvað er í bígerð?

Að finna út úr tónleikaferðum þar sem börn eru með í för. Fara í stúdíó eins oft og við getum. Fylgja eftir laginu sem við gerðum fyrir UNICEF. Hjálpa sem flestum að komast að þeirri niðurstöðu að það er ekki bara gott að vera foreldri heldur er enn betra að vera heimsforeldri, og undirbúa jólin. Það verður t.d. vínyll til sölu frá okkur á markaði hjá Kex Hosteli 22. desember. Tilvalið í jólapakkann.

Ný plata á leiðinni?

Við erum að vinna í nýrri plötu sem á að koma út á næsta ári. Við vinnum með nýjar strategískar aðferðir sem innihalda tússtöflu, gula post-it miða, bláa málningu og marglita penna. Þessar aðferðir skila sér ágætlega og við erum bara nokkuð bjartsýn.

Meira heimsflakk?

Við ætlum í stutta ferð til Bandaríkjanna eftir jól og munum fara í stuttar ferðir til Evrópu. Svo bíðum við auðvitað eftir því að fleiri heimsálfur opni dyrnar fyrir okkur.

Hvar verður FM Belfast eftir fimm ár?

Við verðum væntanlega komin með eldri og fleiri börn. Við verðum komin með fleiri og óskiljanlegri verki hér og þar um líkamann og svo verðum við búin að gefa út fleiri plötur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×