Niðurrif Hamraneslína tryggt Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir skrifar 10. nóvember 2012 06:00 Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar 24. október sl. var samþykktur mikilvægur viðauki við upphaflegt samkomulag Hafnarfjarðarbæjar og Landsnets hf. um röðun framkvæmda við Suðvesturlínur og tryggingu Hafnarfjarðarbæjar fyrir því að raflínur nálægt íbúabyggð á Völlum og við Hamranes verði fjarlægðar eins fljótt og auðið er. Í viðaukanum kemur fram að framkvæmdir við niðurrif línanna muni hefjast eigi síðar en 2016 og að þeim verði lokið eigi síðar en 2020. Jafnframt er áréttaður sá sameiginlegi skilningur aðila að hefjist framkvæmdir við fyrsta áfanga nýs álvers í Helguvík eða annars orkufreks iðnaðar á svæðinu, þá verði þegar hafinn undirbúningur að fyrrgreindum framkvæmdum og línurnar fjarlægðar. Athygli vakti að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiddu viðaukanum ekki atkvæði sitt en komu hins vegar með virkum hætti að gerð upphaflega samkomulagsins. Samkomulags sem þó var með þeim hætti að samningsaðilinn, Landsnet hf., gat leyft sér að ráðast ekki í þær framkvæmdir sem þar var verið að semja um. Forsaga málsinsÍ ágúst 2009 gerðu Landsnet hf. og Hafnarfjörður með sér samkomulag um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Með samkomulaginu var tryggt að samhliða uppbyggingu Suðvesturlínu yrði ráðist í færslu þess hluta flutningskerfisins sem í dag liggur í jaðri íbúabyggðarinnar í Hafnarfirði. Það hefur því ávallt legið fyrir að forsenda niðurrifs Hamraneslínu væri að farið yrði í uppbyggingu nýrrar Suðvesturlínu. Í því samhengi er vert að hafa í huga að niðurrif Hamraneslínu er ekki ein af forsendum uppbyggingar nýrrar Suðvesturlínu. Krafan um þá framkvæmd er alfarið krafa Hafnarfjarðarbæjar og sett fram vegna augljósra og brýnna hagsmuna sveitarfélagsins og íbúa þess. Mikilvæg tímamörkÁ þeim tíma sem samkomulagið var gert lá ekki annað fyrir en að þá þegar yrði hafist handa við framkvæmdina og var þá gert ráð fyrir að línurnar yrðu farnar árið 2011. Tafir hafa hins vegar orðið á framkvæmdum í Helguvík og töluverð óvissa verið uppi um framtíð þess verkefnis. Það er meginástæða þeirra tafa sem orðið hafa á framkvæmdum Landsnets við Suðvesturlínu og þar með niðurrifi Hamraneslínu. Um það hefur Hafnarfjarðarbær ekkert haft að segja, enda kvað fyrra samkomulag ekki á um nein tímamörk framkvæmda. Það gerir fyrrgreindur viðauki aftur á móti og í því liggur mikilvægi hans. Fjarvera SjálfstæðisflokksinsEkki síst þess vegna er athyglisvert að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði eru ekki reiðubúnir að taka þátt í að tryggja hagsmuni bæjarins í þessum efnum. Með framgöngu sinni og afstöðuleysi í þessu máli sýnir Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði fram á að hann er enn og aftur ekki reiðubúinn að axla fulla ábyrgð og standa vörð um heildarhagsmuni Hafnarfjarðar. Með viðaukanum við Landsnet tryggði meirihluti Vinstri grænna og Samfylkingar bindandi samkomulag um hvenær í síðasta lagi umræddar framkvæmdir við niðurrif línumannvirkjanna muni hefjast og hvenær þeim skuli lokið. Þannig eru hagsmunir sveitarfélagsins tryggðir með skýrari hætti en áður hefur verið. Eftir tilraunir til að fá málinu frestað völdu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins að sitja hjá við afgreiðslu samkomulagsins, þessu mikilvæga hagsmunamáli bæjarbúa í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar