Halda uppi málstað Íslendinga 8. nóvember 2012 06:00 Íslenskum stjórnvöldum og hagsmunaaðilum þótti mikilvægt að halda málstað Íslendinga á lofti og réðu til þess almannatengslafyrirtækið Burson-Marsteller. Fréttablaðið /Óskar
Almannatengslafyrirtækið Burson-Marsteller hefur verið ráðið til að aðstoða íslensk stjórnvöld til að halda uppi málstað Íslendinga í makríldeilunni og Icesave-málinu. Í fjáraukalögum er gert ráð fyrir að verja allt að 26 milljónum til þessa verkefnis á næsta ári. Atvinnuvega- og utanríkisráðuneyti fengu Burson-Marsteller til verksins. Huginn Freyr Þorsteinsson, aðstoðarmaður atvinnuvegaráðherra, segir að fyrirtækið muni fylgjast með umræðu um málefni tengd Íslandi, sérstaklega makríldeiluna, í erlendum fjölmiðlum og gefa stjórnvöldum ráð um viðbrögð ef þeirra gerist þörf. „Sumir gagnaðilar Íslands hafa verið með stórar yfirlýsingar sem eru skaðlegar Íslandi og íslenskum hagsmunum, sérstaklega í sjávarútvegi,“ segir Huginn. „Íslensku samninganefndinni, utanríkismálanefnd Alþingis og hagsmunaaðilum fannst sem sjónarmið Íslands kæmu hvergi fram í erlendum fjölmiðlum. Þar sem um mikið hagsmunamál er að ræða fyrir Ísland var því ákveðið að leita eftir ráðgjöf til að tryggja að þeim sterku rökum sem Ísland hefur í makríldeilunni yrði komið á framfæri.“ Varðandi þóknun Burson-Marsteller segir Huginn að óvíst sé hvort öll upphæðin verði nýtt, en það velti á því hvernig deilan þróist og hvort þörf verði fyrir þjónustu fyrirtækisins.- þj
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira