Kaflaskil í norrænni samvinnu Gunnar Alexander Ólafsson og Elvar Örn Arason skrifar 2. nóvember 2012 10:02 Á nýafstöðnu þingi Norðurlandaráðs var upplýst að Svíþjóð og Finnland myndu taka þátt í sameiginlegu loftrýmiseftirliti Norðurlanda á Íslandi. Loftrýmiseftirlit flugherja Norðurlanda er ein tillaga af mörgum um nánara samstarf á sviði öryggis- og varnarmál sem fram kom í skýrslu sem kennd er við Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs. Hann samdi skýrslu árið 2009 fyrir utanríkisráðherra Norðurlandanna um norrænt samstarf í öryggis- og varnarmálum. Í skýrslunni voru settar fram þrettán tillögur sem miða að því að efla norrænt samstarf í ofangreindum málum. Tillaga Stoltenbergs um norrænt loftrýmiseftirlit yfir Íslandi sem ákveðið hefur verið að hrinda í framkvæmd er frumleg og ögrandi, þar sem hvorki Finnar né Svíar eiga aðild að NATO. Að okkar mati er þessi ákvörðun fyrsta skrefið í jákvæðari þróun, þ.e. þeirri að Norðurlandaríkin taki smám saman að sér stærra hlutverk varðandi öryggis- og varnarmál innan Norðurlanda. Í þessu sambandi er athyglisvert að bæði Finnland og Svíþjóð eru hlutlaus ríki og bæði aðildarríki ESB, en þátttaka þeirra í öryggis- og varnarsamstarfi er byggð á grundvelli norrænnar samvinnu. Ákvörðunin um loftrýmiseftirlitið yfir Íslandi tvinnar því saman hagsmuni Norðurlandaríkja, NATO og stefnu ESB í öryggis- og varnarmálum. Aukið samstarf Norðurlandaríkjanna á þessu sviði mun efla öryggi á norðlægum slóðum. Efling norræns samstarfs kæmi því til viðbótar því evrópska samstarfi og Evró-Atlantshafssamvinnu sem nú þegar á sér stað. Utanríkis-, öryggis- og varnarsamstarf ESB er í stöðugri þróun. Íslendingar geta skipað sér í sveit með öðrum norrænum ríkjum og Eystrasaltslöndunum innan þess. Innganga Íslands í ESB ásamt nánara samstarfi Norðurlandaríkja á sviði öryggismála mun fylla það tómarúm sem skapaðist í kjölfar brotthvarfs Bandaríkjahers og minnkandi þátttöku Atlantshafsbandalagsins í öryggismálum á norðlægum slóðum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Á nýafstöðnu þingi Norðurlandaráðs var upplýst að Svíþjóð og Finnland myndu taka þátt í sameiginlegu loftrýmiseftirliti Norðurlanda á Íslandi. Loftrýmiseftirlit flugherja Norðurlanda er ein tillaga af mörgum um nánara samstarf á sviði öryggis- og varnarmál sem fram kom í skýrslu sem kennd er við Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs. Hann samdi skýrslu árið 2009 fyrir utanríkisráðherra Norðurlandanna um norrænt samstarf í öryggis- og varnarmálum. Í skýrslunni voru settar fram þrettán tillögur sem miða að því að efla norrænt samstarf í ofangreindum málum. Tillaga Stoltenbergs um norrænt loftrýmiseftirlit yfir Íslandi sem ákveðið hefur verið að hrinda í framkvæmd er frumleg og ögrandi, þar sem hvorki Finnar né Svíar eiga aðild að NATO. Að okkar mati er þessi ákvörðun fyrsta skrefið í jákvæðari þróun, þ.e. þeirri að Norðurlandaríkin taki smám saman að sér stærra hlutverk varðandi öryggis- og varnarmál innan Norðurlanda. Í þessu sambandi er athyglisvert að bæði Finnland og Svíþjóð eru hlutlaus ríki og bæði aðildarríki ESB, en þátttaka þeirra í öryggis- og varnarsamstarfi er byggð á grundvelli norrænnar samvinnu. Ákvörðunin um loftrýmiseftirlitið yfir Íslandi tvinnar því saman hagsmuni Norðurlandaríkja, NATO og stefnu ESB í öryggis- og varnarmálum. Aukið samstarf Norðurlandaríkjanna á þessu sviði mun efla öryggi á norðlægum slóðum. Efling norræns samstarfs kæmi því til viðbótar því evrópska samstarfi og Evró-Atlantshafssamvinnu sem nú þegar á sér stað. Utanríkis-, öryggis- og varnarsamstarf ESB er í stöðugri þróun. Íslendingar geta skipað sér í sveit með öðrum norrænum ríkjum og Eystrasaltslöndunum innan þess. Innganga Íslands í ESB ásamt nánara samstarfi Norðurlandaríkja á sviði öryggismála mun fylla það tómarúm sem skapaðist í kjölfar brotthvarfs Bandaríkjahers og minnkandi þátttöku Atlantshafsbandalagsins í öryggismálum á norðlægum slóðum.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar