Vilja minnisvarða og minjagripi um ð 29. október 2012 18:45 Stefán Pálsson, Anton Kaldal Ágústsson og Gunnar Vilhjálmsson á Ingólfstorgi þar sem þeir vilja að stytta verði reist af Matthew Parker, föður bókstafsins. Fréttablaðið/Valli
Hollvinasamtök bókstafsins ð vilja að reist verði stytta af Matthew Parker, „föður ð-sins" á Ingólfstorgi. Forsvarsmenn samtakanna hafa útbúið tillögur fyrir borgaryfirvöld í þessu skyni. „Það sem er athyglisvert í þessu er að þessi stafur sem menn náttúrulega túlka sem alíslenskan og hampa fram og til baka og vekja athygli erlendra ferðamanna á skuli hafa þessar erlendu rætur og að það sé fyrst og fremst nokkrum útlendum mönnum að þakka að við séum að notast við hann. Þá sérstaklega þessum breska erkibiskup, sem aldrei kom hingað og vissi nú sennilega ekkert sérlega mikið um landið," segir Stefán Pálsson, sem er einn af hvatamönnunum ásamt Antoni Kaldal Ágústssyni og Gunnari Vilhjálmssyni. Þegar prenttæknin kom fram og farið var að prenta gamla texta þótti Parker ómögulegt annað en að láta útbúa stafatákn fyrir stafina þ og ð, að sögn Stefáns. Ð kom iðulega fyrir í enskum miðaldasögum, sem Parker var áhugamaður um. Það er því helst honum að þakka að stafurinn komst aftur inn í íslenskuna um miðja nítjándu öld. „Það hefði verið tómt mál að tala um að Íslendingar hefðu getað farið að pikka hann upp eitthvað sérstaklega, ef þessi stafur væri ekki til í prentsettum." Félagarnir vilja láta reisa minnismerkið á Ingólfstorgi, nálægt þeim stað þar sem Landsprentsmiðjan var þegar hún prentaði bókstafinn í fyrsta skipti um miðja nítjándu öld. Stefán segir hugmyndina útpælda en nú sé fjármögnun á verkinu vandamálið. „Búið er að planta hugmyndinni og þá treystum við því að velgjörðarmenn stökkvi til. Til dæmis bera margir þennan staf í nafni sínu og það er kannski ekki ósanngjarnt að þeir leggi eitthvað sérstaklega af mörkum." Stefán og félagar sjá mikil færi í ferðamennsku. „Hingað kemur straumur breskra ferðamanna. Þeir sæju þá landa sinn á svona áberandi stað, þar sem er mjög stutt í svona flíspeysuverslanir og annað slíkt. Ð-tengdur túristavarningur gæti alveg skotið nýrri stoð undir efnahagslífið." Þeir félagar hafa einnig, ásamt Steinari Inga Farestveit, skrifað ævisögu ð-sins, sem kemur út á næstunni. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Innlent „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Erlent Fleiri fréttir Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent