Jafnt vægi atkvæða Guðmundur Gunnarsson skrifar 18. október 2012 06:00 Það er grundvallaratriði í lýðræðislegu stjórnskipulagi að allir þegnar samfélagsins hafi jafna möguleika til þess að hafa áhrif á stjórn landsins. Atkvæði allra kjósenda vegi jafnt þegar gengið er til kosninga. Á þetta var lögð mikil áhersla á Þjóðfundinum og hefur þetta verið áberandi krafa á öllum stigum við endurnýjun stjórnarskrárinnar. Andstæðingum þessa brýna máls hefur tekist að gera þetta að deilumáli milli landsbyggðar og þéttbýlis á SV-horni landsins. Þetta misvægi er að hluta til afleiðing búsetuflutninga frá dreifbýli til þéttbýlis, ekki meðvitað pólitískt markmið. En það veldur aftur á móti að mikil völd eru í höndum flokksmaskínanna, sakir þess að núgildandi kosningakerfi er þannig að allt að 2/3 þingsæta eru fyrir fram örugg og tryggir núverandi flokkakerfi. Landsbyggðin hefur alltaf átt fleiri fulltrúa á þingi en íbúahlutfall segir til um. Miklar breytingar voru gerðar til bóta með kjördæmabreytingunni árið 1959 og síðar með nýrri kjördæmaskipan. Í alþingiskosningum 2009 voru um 2.400 kjósendur á kjörskrá að baki hverjum kjörnum þingmanni í Norðvesturkjördæmi en tæplega 5.000 í Suðvesturkjördæmi. Þingmaður í Suðvesturkjördæmi þurfti þannig að fá ríflega tvöfalt fleiri atkvæði en þingmaður í Norðvesturkjördæmi til að ná kjöri. Eftirlitsmenn Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) voru hér á landi og fylgdust með síðustu alþingiskosningum. Í skýrslu ÖSE um kosningarnar var bent á að misvægi atkvæða milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar væri alltof mikið. Reglur ÖSE kveða á um að misvægið milli einstakra kjördæma sé innan 10% og aldrei meira en 15%. Mismunurinn hér fór aftur á móti upp í 100% og taldi ÖSE að tímabært væri að huga að endurskoðun á viðkomandi lagaákvæði um dreifingu þingsæta. Í umræðum um stöðu dreifbýlis gagnvart þéttbýlinu á SV-horninu er málum gjarnan stillt upp með þeim hætti, að dreifbýlið búi við einhvers konar samsæri af hálfu þéttbýlinga. Til þess að vinna gegn þessu samsæri verði að viðhalda mismunandi vægi atkvæða. Með því sé stuðlað að öflugri atvinnutækifærum í dreifbýlinu og launakjör bætt, samfara því að minnka atvinnuleysi og slaka félagslega stöðu í dreifbýlinu. Þessu er haldið fram þrátt fyrir að um áratugaskeið hafi verið mikið misvægi atkvæða og atvinnuleysi og slök félagsleg staða hér á landi er mest í úthverfum höfuðborgarsvæðisins. Í tillögum Stjórnlagaráðs er lagt til í 39. grein að öll atkvæði á landinu vegi jafnt. Alþingi geti ákveðið hvort landið verði eitt kjördæmi en skipt því upp í allt að átta kjördæmi. Í tillögum stjórnlagaráðs er gert ráð fyrir að hægt sé að setja lágmörk sem tryggi hverju kjördæmi lágmarksfjölda þingmanna í réttu hlutfalli við fjölda kjósenda viðkomandi kjördæmis. Þetta er lágmarkstrygging því kjördæmin munu fá að jafnaði fleiri þingmenn en svarar til kjósendafjölda, sérstaklega ef þar eru frambjóðendur sem höfða til kjósenda utan síns kjördæmis. Ástæða er að benda á að langflestir íbúa SV-hornsins eiga rætur í öðrum landsvæðum og eru með miklar tengingar þangað. Það er líklegt að sum kjördæmi fái fleiri þingsæti en svarar til kjósendatölu. En það er þá að vilja kjósenda annars staðar að af landinu, en ekki fyrir skikkan kosningakerfisins eins og nú er. Listar verða boðnir fram á kjördæmavísu en líka landsvísu. Frambjóðandi á kjördæmislista má jafnframt vera á landslista síns flokks eða samtaka, en þar mega líka vera frambjóðendur utan kjördæma. Kjósandi getur valið einstaklinga, jafnvel af mörgum listum. Gagnvart kjósendum er landið því sem eitt kjördæmi. Frambjóðandi hlýtur að jafnaði að tala til kjósenda í kjördæmi sínu en líka höfða til allra landsmanna, vilji hann hljóta stuðning utan kjördæmis síns. Þannig nást kostir landskjörs, sem kallar fram ábyrgð þingmanna gagnvart öllum landslýð, en um leið er trygging fyrir því að rödd hverrar byggðar heyrist á Alþingi. Misvægi atkvæða hér á landi hefur leitt til þess að við búum við klúðurslegt kosningakerfi, þar sem reynt er að tryggja jöfnuð milli flokka með flóknu jöfnunarsætakerfi. Með jöfnu atkvæðavægi geta úthlutunarreglur orðið einfaldari. Í stjórnarskrám er það grundvallarregla að allir eigi að vera jafnir fyrir lögum og njóta sömu mannréttinda. Lýðræðið getur ekki verið stigskipt. Það er stjórnarskrárbrot að tala um hálf mannréttindi í kosningarrétti og í öðrum lýðréttindum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson Skoðun Sniðgangan á Rapyd slær öll met Björn B. Björnsson Skoðun Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks? Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Trumpistar eru víða Trausti Breiðfjörð Magnússon Skoðun Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur? Valur Elli Valsson Skoðun Árið 2023 kemur aldrei aftur Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðin stendur með sjúkraliðum Sandra B. Franks Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín Skoðun Veiðigjöld, gaslýsingar og valdníðsla Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun Skoðun Skoðun Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja satt Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og Íslandsbanki, hluthafafundur á mánudag Bolli Héðinsson skrifar Skoðun „Þegar arkitektinn fer á flug“ - opinber umræða á villigötum Eyrún Arnarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið þarf stjórnvöld með bein í nefinu Svandís Svavarsdóttir skrifar Skoðun Börn eru hvorki veiðigjöld né öryggis- og varnarmál Grímur Atlason skrifar Skoðun Í vörn gegn sjálfum sér? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin stendur með sjúkraliðum Sandra B. Franks skrifar Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar Skoðun Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Veiðigjöld, gaslýsingar og valdníðsla Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Sniðgangan á Rapyd slær öll met Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson skrifar Skoðun Árið 2023 kemur aldrei aftur Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Trumpistar eru víða Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar Skoðun Fasteignagjöld eru lág í Reykjavík Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen skrifar Skoðun Nýbakaðir foreldrar og óbökuð loforð Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þegar bráðamóttakan drepur þig hraðar Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir skrifar Skoðun Samkeppnin tryggir hag neytenda Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Stóðhryssur ekki moldvörpur Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar Skoðun Við getum gert betur Einar Bárðarson skrifar Skoðun Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Ábyrg stefna í útlendingamálum Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Týndu hermennirnir okkar Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Gerist þetta aftur á morgun? Ísak Hilmarsson skrifar Skoðun Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Staða þorpshálfvita er laus til umsóknar Jón Daníelsson skrifar Sjá meira
Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín Skoðun
Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar
Skoðun Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson skrifar
Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen skrifar
Skoðun Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar
Skoðun Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu? Helen Ólafsdóttir skrifar
Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín Skoðun