Lýðræðinu ógnað á margan hátt 8. október 2012 00:00 Michael T. Corgan
Þó enn sé óvíst hvort frammistaða Baracks Obama og Mitts Romney í kappræðunum í vikunni komi til með að skipta sköpum þegar upp er staðið markaði rimman upphafið að endasprettinum í kosningaferli sem markar tímamót að mörgu leyti. Romney var sannarlega keikur eftir kappræðurnar enda var það mál manna að hann hefði haft forsetann undir og jafnvel náð að höfða til óákveðinna kjósenda á miðju stjórnmálanna. Obama náði sér ekki á strik, var langorður og hikandi og nýtti sér ekki færi til að hanka Romney á nokkrum lykilatriðum. Í framhaldinu sakaði Obama andstæðing sinn um að hafa hallað réttu máli í viðræðunum auk þess sem ríkisstjórinn fyrrverandi hefði enn skotið sér undan því að skýra fyrirhugaða skattastefnu sína. Romney hefur sagst ætla að skera niður skattheimtu um fimm þúsund milljarða dala næsta áratuginn en þó án þess að auka á skuldir ríkissjóðs. Aðgerð sem hagfræðingar telja að geti trauðla gengið upp. Baráttan er því að komast í fimmta gír og verður eflaust óvægnari fram að kjördegi 6. nóvember næstkomandi. Lýðræði í reynd?Bandaríkjamenn leggja jafnan ofuráherslu á lýðræðishugsjónina, en hversu virkt er lýðræðið í forsetakosningunum? Michael T. Corgan, dósent í alþjóðasamskiptum við Boston College, hélt framsögu á vegum Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands í gær þar sem hann fjallaði einmitt um lýðræðið og framtíð þess í tengslum við kosningarnar. Að hans mati er ýmislegt sem skekkir myndina varðandi jöfn tækifæri þegna landsins til að hafa áhrif á stjórn landsins. Á meðal þess sem hann tiltók var hlutverk hvers ríkis í vali forsetans, hertar reglur um að sýna skilríki á kjörstað og hinn taumlausi fjáraustur í kosningabaráttuna sem setur ný viðmið í þessum efnum. Ohio velur forsetannÞað er kunn staðreynd að vegna kjörmannakerfisins eru það íbúar fárra ríkja sem ráða úrslitum kosninganna hverju sinni. Hvert ríki hefur ákveðinn fjölda kjörmanna, eftir íbúafjölda, sem velja svo forseta. Sigurvegari í hverju ríki (utan Nebraska og Maine) fær alla kjörmenn þess og er því til mikils að vinna. Lykilríkin eru þau þar sem mjótt er á munum milli frambjóðenda. Þau eru mismörg hverju sinni, jafnan á bilinu tíu til fimmtán, og njóta þau bættrar stöðu gagnvart öðrum í aukinni athygli frambjóðenda og loforða sem þeir gefa í baráttunni, í von um að snúa kjósendum í ríkinu til fylgis við sig. Á meðan eru þau ríki sem ekki tjáir að berjast um afskipt og hafa síður áhrif á stefnu frambjóðenda. Erkidæmið um lykilríki er Ohio sem hefur oftar en ekki riðið baggamuninn í kosningum. Ekki er því að undra að Corgan hafi sagt í fyrirlestrinum, í hæðnistón, að í raun sé verið að velja forseta Ohio! Staða Obama í lykilríkjunum er sem stendur mun sterkari en Romney hefur saxað á forskotið í kjölfar kappræðnanna. Kerfið gegn fátækumKosningafyrirkomulagið í Bandaríkjunum hefur um árabil verið þannig úr garði gert að lágtekjufólk á erfiðara með að taka þátt í kosningum. Það mál sem er nú í forgrunni, og Corgan minntist á, er viðleitni til að herða reglur um skilríki á kjörstað, undir því meinta yfirskyni að verið sé að koma í veg fyrir kosningasvindl sem hefur hreint ekki verið vandamál hingað til. Corgan sagði að skilríki með mynd væru hreint ekki svo algeng, og þá síst meðal þeirra tekjulægri, og gengju nýjar reglur þá beint gegn möguleikum þess hóps til að geta nýtt kosningarétt sinn. Fordæmalaus fjárausturÞrátt fyrir að ekkert launungarmál hafi verið að fjármagn geti og hafi skipt sköpum í forsetakosningabaráttu um árabil marka þessar kosningar tímamót. Áður hafði kosningalöggjöf sett hömlur á framlög en eins og Corgan benti á breytti nýlegur úrskurður hæstaréttar öllu fjármögnunarumhverfi framboða. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að ekkert gæti bannað fyrirtækjum að ?tjá skoðanir sínar?, það er að styrkja málstað eins frambjóðanda umfram annan. Það hefur orðið til þess að peningum hefur rignt inn í svokallaða Super PAC-sjóði, sem eru aðeins bundnir af því að vera ekki beintengdir frambjóðendunum og að í útgefnu efni þeirra sé ekki hvatt til þess að kjósa annan frambjóðandann fram yfir hinn. Áherslan hefur því frekar verið á að tíunda ókosti andstæðingsins og velta upp þeirri spurningu hvort kjósendur vilji að hann nái kjöri. Um síðustu mánaðamót hafði Romney safnað tæpum 800 milljónum dala og Obama litlu minna, en allt stefnir í að þeir muni samtals eyða rúmum tveimur milljörðum dala í kosningabaráttuna, sem er meira en nokkru sinni áður. Ef fram fer sem horfir munu Bandaríkjamenn væntanlega sjá enn meiri áherslu á helstu lykilríkin þar sem frambjóðendur munu ríða um héruð með fulla vasa fjár.
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Yrði stærsta lýðheilsuslys Íslandssögunnar Innlent Segir Enok hafa setið fyrir manni sem stakk hann hálfu ári áður Innlent Segja Pútín vilja vopnahlé sem miðist við núverandi víglínur Erlent Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra Innlent Mikill harmleikur en skýrir farvegir Innlent Svipað og frekar róleg haustlægð Innlent Rúta brann til kaldra kola við Sóltún Innlent Tamningakona sýknuð af bótakröfu vegna reiðslyss Innlent Sá sem át ekkert nema McDonalds í mánuð er fallinn frá Erlent Albert Guðmundsson verður ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Fleiri fréttir Segja Pútín vilja vopnahlé sem miðist við núverandi víglínur Sá sem át ekkert nema McDonalds í mánuð er fallinn frá Ísrael eigi að láta af öllum hernaðaraðgerðum í Rafah „Þetta setti af stað dómínó-áhrif út um allan heim“ Óttast um afdrif ríflega hundrað eftir aurskriðu Allsherjarsigur gegn Hamas ólíklegur Segir yfirlýsingar um að FBI hafi mátt skjóta Trump stórhættulegar Segir samstöðu lykilinn að jarðgangagerð Færeyinga Fjórir látnir eftir að bygging hrundi á Majorku Munu þurfa að afplána í Kósovó Skoða að leyfa árásir í Rússlandi með bandarískum vopnum Segja fiskiolíu geta aukið líkurnar á gáttatifi og heilablóðfalli Kínverjar æfa innrás á Taívan Níu létust á framboðsfundi Fjölskyldur birta myndskeið af blóðugum gíslum Hamas-liða Annar umdeildur fáni hékk við annað hús dómara Höfða mál gegn hundrað lögregluþjónum vegna árásarinnar í Uvalde Boðar til kosninga í Bretlandi í sumar Saka Rússa um að skapa ótta á Eystrasalti Mikill eldur í höfuðstöðvum Novo Nordisk Lýsa hrikalegum aðstæðum í flugi Singapore Airlines: „Það var svo mikið öskrað“ Saka Ísraela um að misbeita lögum til þess að stöðva streymi frá Gasa Æðsti klerkurinn stýrði útför íranska forsetans Lætur líklega reyna aftur á þungunarrofsfrumvarpið Rússar sagðir hafa skotið geimvopni á sporbaug Ísraelar kalla sendiherrana heim frá Noregi, Írlandi og Spáni Búist við að Noregur viðurkenni Palestínu sem sjálfstætt ríki Sagðist opinn fyrir takmörkunum á getnaðarvarnir Hálfri milljón yrði gert að rýma kæmi til goss Kanna hvar Perry fékk ketamínið Sjá meira
Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra Innlent
Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra Innlent