Tónlist

Sónar-hátíðin til Íslands í fyrsta sinn

stuð á sónar Fatboy Slim og Lana Del Rey stigu bæði á svið á Sónar-hátíðinni í sumar.
stuð á sónar Fatboy Slim og Lana Del Rey stigu bæði á svið á Sónar-hátíðinni í sumar.
Hin heimsfræga tónlistarhátíð Sónar verður haldin í fyrsta sinn í Hörpunni í Reykjavík dagana 14. til 16. febrúar á næsta ári. Þetta staðfesti skipuleggjandinn Björn Steinbekk við Fréttablaðið en gat að öðru leyti ekki tjáð sig um hverjir kæmu þar fram.

Um er að ræða eina af þekktari tónlistarhátíðum Evrópu. Hún hefur verið haldin í Barcelona á Spáni frá árinu 1994. Frá 2002 hefur hátíðin fært út kvíarnar og verið haldin í São Paulo, Tókýó og Höfðaborg. Að undanförnu hafa London, Frankfurt, Seúl og Buenos Aires bæst í hópinn og núna er röðin komin að Íslandi. Samanlagt sækja um 150 þúsund manns hátíðina á ári hverju.

Sónar er þekkt fyrir elektró- og indítónlist, auk þess sem frægir popparar hafa troðið upp á hátíðinni. Meðal þekktra flytjenda í Barcelona í sumar voru Fatboy Slim, New Order, Hot Chip, Lana Del Rey, The Roots, James Blake og Squarepusher. Í fyrra stigu á svið á hátíðinni M.I.A., The Human League, Aphex Twin, Underworld og Dizzee Rascal.

Talið er að um þrjátíu flytjendur taki þátt í Sónar hér á landi og verður helmingur þeirra erlendur. Fyrir í Reykjavík er Iceland Airwaves-hátíðin sem er haldin á hverju hausti við fádæma góðar undirtektir. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×