Bæta þarf umgjörð utan um krónuna 18. september 2012 04:00 Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, og Már Guðmundsson seðlabankastjóri kynntu skýrsluna í gær. Fréttablaðið/Valli
Mikilvægt er að gera umbætur á peningastefnunni og annarri hagstjórn hér á landi eigi áfram að styðjast við fljótandi krónu. Öðrum kostum en upptöku evru í gegnum aðild að ESB fylgja hins vegar verulegir annmarkar. Í skýrslu Seðlabankans er í nokkru máli fjallað um reynslu Íslendinga af sjálfstæðri peningastefnu með fljótandi krónu. Er það mat skýrsluhöfunda að sú reynsla hafi verið blendin í meira lagi og að hið sveigjanlega gengi krónunnar hafi oftar en ekki magnað sveiflur hér á landi fremur en að stuðla að stöðugleika. Þannig er bent á að sveiflur í einkaneyslu hafi verið meiri hér á landi en meðal annarra þróaðra ríkja og talsvert meiri en réttlæta má með sveiflum í ytri skilyrðum þjóðarbúsins. Á það er hins vegar bent í skýrslunni að það muni taka nokkurn tíma að ná niðurstöðu í samningum um aðild að Evrópusambandinu (ESB) verði sá kostur á annað borð ofan á í umræðunni um framtíðarskipan gjaldmiðilsmála. Það er því talin mjög mikilvæg spurning hvort hægt er að gera þær umbætur á peningastefnunni, annarri hagstjórn og regluverki og eftirliti með fjármálastarfsemi að sveigjanlegt gengi á grundvelli krónunnar verði vænlegur kostur. Og það án þess að fórna þurfi óheftum fjármagnshreyfingum. Seðlabankinn hefur áður fjallað nokkuð um hvernig endurbætt skipulag hagstjórnar hér á landi byggt á fljótandi krónu gæti gengið fyrir sig. Um þetta er ekki síst fjallað í ritunum Peningastefnan eftir höft og Varúðarreglur eftir fjármagnshöft sem Seðlabankinn hefur gefið út á síðustu misserum. Í ritunum er meðal annars lagt til að ríkisfjármálastjórn hins opinbera styðji betur við peningamálastjórnina en hingað til en að því má meðal annars stuðla með vel útfærðum reglum um ríkisfjármálin. Þá er talið skynsamlegt að lögfesta hér á landi nokkrar svokallaðar þjóðhagslegar varúðarreglur og festa í sessi ákveðin ný tæki sem beita megi til að vinna að fjármálastöðugleika. Þá hefur Seðlabankinn lagt til ákveðnar endurbætur á peningastefnunni sjálfri sem stuðla eigi að lengri sjóndeildarhring við mótun stefnunnar sem og breytingar á fjármálakerfinu með það fyrir augum að bæta miðlunarferli peningastefnunnar. Er það mat Seðlabankans að verði þessum og fleiri tillögum bankans hrint í framkvæmd verði innlend peningastefna skilvirkari og þá megi vona að í kjölfarið dragi úr umframsveiflum krónunnar. Þá hefur þessi leið meðal annars þá kosti að Ísland viðheldur sjálfstæðri peningastefnu og sveigjanlegu gengi sem getur komið hagkerfinu að gagni, innlent áhlaup á ríkissjóð eða stönduga banka verður viðráðanlegt og einnig er dregið úr vissum aflvökum fjármálalegs óstöðugleika. Ókostir þessarar leiðar felast meðal annars í því að möguleikar utanríkisviðskipta án gengisáhættu verða áfram takmarkaðir og innlent fjármálakerfi verður áfram dýrara og einangraðra en ella. Þá mun þurfa takmarkandi varúðarreglur á alþjóðlega starfsemi innlendra fjármálafyrirtækja.Verulegir ókostir við aðra valkosti Í riti Seðlabankans er einnig fjallað um aðra valkosti Íslands í peningamálum en evru og fljótandi krónu. Fyrst er tekið fyrir fyrirkomulag peningamála sem nefnist gengistenging. Felst það í því að stjórnvöld festa gengi íslenska gjaldmiðilsins við annan gjaldmiðil eða körfu gjaldmiðla. Helstu kostir slíks fyrirkomulags eru þeir að gengissveiflur minnka og þá getur slíkt fyrirkomulag aukið trúverðugleika innlendrar hagstjórnar. Reynsla fjölda þjóða sýnir hins vegar að erfitt getur reynst að viðhalda einhliða gengistengingu þegar fjármagnsflutningar eru óheftir. Annar möguleiki er að búa til lögfest opinbert skiptigengi krónunnar við erlendan gjaldmiðil en það fyrirkomulag nefnist myntráð. Hefur það flesta sömu kosti og gengistenging en hefur meðal annars þann ókost að möguleikar seðlabanka til að draga úr lausafjárvanda í bankakerfinu skerðast verulega. Þá þarf að halda mjög stóran, og þar með kostnaðarsaman, gjaldeyrisforða. Að lokum er fjallað um möguleikann á einhliða upptöku evru eða annars gjaldmiðils en Seðlabankinn telur evruna liggja langbeinast við í því samhengi. Á það er bent að kostir og gallar einhliða upptöku séu að hluta til þeir sömu og upptöku evru í gegnum ESB. Við það reikningsdæmi bætist þó sá vandi að framboð nýja gjaldmiðilsins myndi sveiflast með fjármagnsstreymi til og frá landinu. Gæti það við ákveðnar aðstæður hæglega valdið lausafjárvanda fyrir bankakerfið og lánsfjármögnun ríkissjóðs sem gæti endað með greiðslufalli og fjármálakreppu án þess að stjórnvöld hér á landi gætu nokkuð gert. Hægt væri að draga úr þessari hættu með ákveðnum mótvægisaðgerðum en slíkar aðgerðir myndu kosta verulega fjármuni án þess að víst væri að þær myndu duga þegar á reyndi. Einhliða upptaka getur því falið í sér mikla áhættu fyrir stöðugleika auk þess sem benda má á þann mikla einsskiptiskostnað sem fælist í að kaupa seðla og mynt fyrir umskiptin og þá staðreynd að Ísland yrði af myntsláttuhagnaði. Að lokum er þó bent á að hjá þessum vandamálum mætti komast með tvíhliða samningi við annað ríki. Ekki eru þó dæmi þess að ríki hafi samið um slíkt. Þá má telja líklegt að slíkur samningur yrði verulega skilyrtur og gæti þar með falið í sér jafnvel meira fullveldisframsal en á sér stað við formlega aðild að evrusvæðinu.magnusl@frettabladid.is
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Innlent Heimamanna bíður það verkefni að finna nafn á nýja lónið sem er komið til að vera Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira