Getum við ekki lyft umræðunni upp á hærra plan? Ólafur Sigurðsson skrifar 3. september 2012 06:00 Heilsustofnun NLFÍ (HNLFÍ) þjónustar um 1.700-2.000 Íslendinga á ári. Stofnunin er með þjónustusamning við ríkið, þar sem tiltekið er hvaða þjónustu eigi að veita og hvað greitt er fyrir. Okkur reiknast til að við veitum ríkinu mjög ódýra þjónustu. Við fullyrðum einnig að starf HNLFÍ hefur skilað þjóðfélaginu aftur því sem lagt er í það, með heilbrigðari einstaklingum. Hér var líka tekið til hendinni í kjölfar kreppunnar. Skorinn niður kostnaður frá 2009 um tæp 30%. Þrátt fyrir það hefur okkur verið hótað meiri niðurskurði nánast árlega. Það er vont að vita af þessari hótun en verra að ekkert samráð er haft við forsvarsmenn HNLFÍ. Mikil leynd hvílir yfir öllu. Samtímis sjáum við margan forráðamann heilbrigðisfyrirtækja geysast fram á fjölmiðlavöllinn og lýsa slæmu ástandi í rekstri. Þá vitum við að nú er að hefjast baráttan um fjárlagarammann. Við vonum að þessi fjölmiðlasirkus villi mönnum ekki of mikið sýn. Auðvitað bregður okkur þegar slíkur áróður byrjar, við höfum ekki fjölmiðlaráðgjafa. Velferðarráðherra Samfylkingarinnar ásamt einum af fyrrum heilbrigðisráðherrum Vinstri grænna hótaði HNLFÍ miklum niðurskurði á árunum 2010 og 2011. Ráðherrarnir slógu samt í og úr. Á síðustu stundu náðist að draga núverandi ráðherra að samningaborðinu og úr varð samningur um áramótin síðustu. Velferðarráðuneytið hefur einhliða vanefnt samninga á árunum 2009-2011, skorið niður fjárframlög sem nemur rúmlega 20% og tvisvar hótað okkur verulega meiri niðurskurði. HNLFÍ hefur því átt á brattann að sækja í viðskiptum við núverandi stjórnvöld. Gæti það verið vegna þess að við stöndum upp og svörum fyrir okkur þegar að okkur er sótt? Erum þó vanir því að verja okkar málstað af einurð, höfum þurft þess, og oftast haft rétt fyrir okkur. Allt frá 1927 sögðu NLFÍ-menn að reykingar væru hættulegar. Lengi fram eftir 20. öldinni sögðu þeir að hreyfing og hollt mataræði væri nauðsyn. Nú er þetta allt orðið almenn sannindi. Í dag segjum við að skortur á forvörnum og endurhæfingu sé skaðlegur. Það er auðvitað rétt. Þessi skortur á eftir að kosta okkur mikla fjármuni. Kannski ekki á okkar tíð, sem erum á miðjum aldri, en þegar börnin okkar og barnabörnin fara að borga heilbrigðisþjónustuna munu þau stynja undan. Ég hef ekki heyrt mikið rætt síðustu misserin hvernig velferðarráðherra sér heilbrigðisþjónustu framtíðarinnar, sem við á HNLFÍ teljum okkur hluta af. Enn og aftur er verið að slökkva elda. Á fjórða ári eftir kreppu virðist ekki mikill áhugi á því að lyfta umræðunni um þennan mikilvæga lið á aðeins hærra plan. Ákvarðanir ríkisvaldsins um kaup á þjónustu eiga að byggja á góðri þekkingu á valmöguleikum, kostnaði og gæðum. Þannig fara stjórnvöld vel með almannafé. Heilbrigðisþjónusta er ein af grunnþörfum okkar, við viljum ekki kasta til hendinni við hana. Heilbrigðiskerfið þarf stöðugleika og öryggi en ekki ákvarðanir sem eru teknar einn daginn og dregnar til baka þann næsta. Þegar svo við heyrum að upplýsingar um heilbrigðismál séu illa aðgengilegar, skortur á upplýsingum fyrir þá sem um eiga að sýsla (sjá skýrslu Boston Consulting Group), þá bregður okkur. Þá spyr maður sig: Reka ráðamenn fingurinn upp í vindinn og taka ákvörðun? Nú skora ég á velferðarráðherra að hefja vinnu við að bæta úr þessu. Safna saman þeim upplýsingum sem hann þó hefur, og nota þær til að vinna, þó ekki nema grófa langtímaáætlun. Það er betra en ekkert. Mín ráð til velferðarráðherra eru að sparnaði í heilbrigðiskerfinu til langs tíma verður ekki náð án þess að auka forvarnir og endurhæfingu. Slík fjárfesting skilar sér þó ekki á kjörtímabili stjórnmálamanna, hún er langtímasparnaður. Ráðherrann verður samt að muna eftir þessari mikilvægu þjónustu ef hann vill ná langtímasparnaði. Berum ábyrgð á eigin heilsu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Sjá meira
Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir Skoðun
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir Skoðun