Til Íslands að leysa fjölskylduráðgátuna 28. ágúst 2012 08:15 Giuseppe Massaro Veit núna að afi hans vann við vegagerð og viðgerðir á klukkum í Keflavík þau sex ár sem hann bjó hér á landi um miðja síðustu öld.fréttablaðið/stefán
Ítalski verkfræðingurinn Giuseppe Massaro er staddur hér á landi til að fræðast um afdrif afa síns Salvatore Massaro en enginn veit af hverju hann tók sig til og flutti til Íslands árið 1954. Bjó hann hér á landi til dauðadags árið 1960. Brotthvarf Salvatores Massaro olli miklu róti sem verið hefur viðvarandi í stórfjölskyldunni allar götur síðan. „Afi var sendur til Eþíópíu í stríðinu meðan Ítalir voru með sitt hernaðarbrölt þar," segir Massaro. „Þá var hann tekinn til fanga og sat um árabil í breskri dýflissu. Svo þegar hann sneri aftur til Sikileyjar, þaðan sem ég er, ákvað hann að flytja á brott. Hann dvaldi um hríð í Róm en fór svo til Íslands af einhverjum ástæðum sem enginn veit." Frá því að Giuseppe Massaro kom til landsins hefur hann spurst fyrir um afa sinn en brotthvarf hans var slíkt hneykslismál á Sikiley að ekki var um hann talað. „Hvorki amma né pabbi minntust á hann og fóru undan í flæmingi þegar á þau var gengið," segir Massaro. „Ég hef hins vegar komist að ýmsu hér á Íslandi enda hefur fólk verið afar vinsamlegt og hjálplegt. Mér þykir náttúrlega mest um það að allir bera honum vel söguna. Hann hefur greinilega verið góður maður en fólk hefur einnig sagt mér að hann hafi verið svolítill einfari og að einhver depurð hafi verið yfir honum," segir Massaro. „Ég komst líka að því að hann sendi ömmu ávísun og leiðbeiningar um það hvernig pabbi, sem þá var á unglingsaldri, átti að koma sér til Íslands." Af þessari ferð varð þó aldrei að sögn Massaro en hann segir ömmu sína hafa sagt að bankinn hafi hafnað ávísunni. „Mig grunar þó að það hafi ekki verið ástæðan heldur hitt að amma vildi ekki sjá á eftir syni sínum til Íslands." Faðir Giuseppes Massaro Íslandsfara lést á síðasta ári en fjölskyldan hefur fylgst vel með framgangi mála í ferðinni. „Mér finnst eins og það hafi náðst sátt í stórfjölskyldunni eftir að þetta allt kom í ljós. Og þegar ég sá grafreit afa míns hér á Íslandi fannst mér eins og meinið sem hlaust af brotthvarfi hans hefði horfið. Ég heyri það líka á fólkinu mínu úti að það ríkir nú loksins sátt." Um Salvatores: Salvatore Massaro kom hingað til lands árið 1954 og bjó í Keflavík. Hann vann fyrstu þrjú árin við vegavinnu og hafnargerð en síðar setti hann upp verkstæði þar sem hann gerði við klukkur og heimilistæki enda var hann afar flinkur í höndunum. Hann lést árið 1960. Eftir andlátið birtist auglýsing um dánarbúið í Morgunblaðinu og Alþýðublaðinu. jse@frettabladid.is
Fréttir Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Erlent Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Sjá meira