Af Guðs ríki og öðrum skúmaskotum hugans Gunnlaugur Bragi Björnsson skrifar 17. ágúst 2012 06:00 Hún stakk nokkuð í stúf, auglýsing Söfnuðar Moskvu-Patríarkatsins á Íslandi í Fréttablaðinu laugardaginn 11. ágúst. Sama dag birtust í fjölmiðlum landsins litríkar auglýsingar fyrirtækja í tilefni þess að þann dag gekk gleðiganga Hinsegin daga um miðborgina og endaði með stórhátíð á Arnarhóli. Þar gerði hinsegin fólk ásamt tugþúsundum fjölskyldumeðlima, vina og annarra gesta sér glaðan dag og fagnaði mannréttindum sem Íslendingar kjósa að virða í stað þess að troða fótum. Á þessum gleðidegi kaus Söfnuður Moskvu-Patríarkatsins þó að minna á þá skoðun sína að ákveðnir hópar muni ekki erfa Guðs ríki. Söfnuðurinn valdi reyndar að koma ekki fram undir nafni í umræddri auglýsingu en fréttavefurinn Vísir.is nafngreindi auglýsandann tveimur dögum síðar. En í auglýsingunni nefndu rétttrúnaðarmenn „kynvillinga“ ásamt meðal annars þjófum og ræningjum, saurlífismönnum, hórkörlum og skurðgoðadýrkendum. Hinsegin fólk á Íslandi getur verið stolt af heimalandi sínu enda eru réttindi og stuðningur sem við njótum hér á landi með því besta í heiminum. Fyrir það ber að þakka og í dag eru Hinsegin dagar ekki eingöngu barátta fyrir auknum réttindum heldur í raun fimm daga menningarhátíð þar sem hinsegin fólk þakkar fyrir sig og gefur landsmönnum öllum kost á að njóta fjölbreyttrar dagskrár. Það er mér þó nokkuð áhyggjuefni að ákveðnir hópar kjósi enn þann dag í dag að þeysa um undir merkjum haturs og dilkadráttar samkvæmt þeirra túlkun á Guðsorði. Enn þann dag í dag er skrefið út úr skápnum mörgum einstaklingum þungbært en líkt og nýleg rannsókn sýnir eru sjálfsvígshugleiðingar enn algengari meðal hinsegin unglinga en gagnkynhneigðra jafnaldra þeirra. Orðsendingar sem þessar eru ekki vænlegar til að létta á þeirri innri baráttu sem fjölmargir heyja á öllum tímum. Það er von mín að Söfnuður Moskvu-Patríarkatsins og aðrir sambærilegir lífsskoðunarhópar sjái að sér og nýti sameiningu, fegurð lífsins og gleði í baráttu sinni fremur en hatur og sundrung. Ef ekki – þá vona ég í það minnsta að þeir gæti þess að skerða hár sitt samkvæmt öllum kúnstarinnar reglum, klæðist rétt ofnum fatnaði og neyti ekki of ungra ávaxta, til að koma í veg fyrir að þurfa að deila því neðra með kynvillingum og þjófum er fram líða stundir. Ef til þess kemur ætla ég nefnilega að halda áfram að gleðjast þar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Hún stakk nokkuð í stúf, auglýsing Söfnuðar Moskvu-Patríarkatsins á Íslandi í Fréttablaðinu laugardaginn 11. ágúst. Sama dag birtust í fjölmiðlum landsins litríkar auglýsingar fyrirtækja í tilefni þess að þann dag gekk gleðiganga Hinsegin daga um miðborgina og endaði með stórhátíð á Arnarhóli. Þar gerði hinsegin fólk ásamt tugþúsundum fjölskyldumeðlima, vina og annarra gesta sér glaðan dag og fagnaði mannréttindum sem Íslendingar kjósa að virða í stað þess að troða fótum. Á þessum gleðidegi kaus Söfnuður Moskvu-Patríarkatsins þó að minna á þá skoðun sína að ákveðnir hópar muni ekki erfa Guðs ríki. Söfnuðurinn valdi reyndar að koma ekki fram undir nafni í umræddri auglýsingu en fréttavefurinn Vísir.is nafngreindi auglýsandann tveimur dögum síðar. En í auglýsingunni nefndu rétttrúnaðarmenn „kynvillinga“ ásamt meðal annars þjófum og ræningjum, saurlífismönnum, hórkörlum og skurðgoðadýrkendum. Hinsegin fólk á Íslandi getur verið stolt af heimalandi sínu enda eru réttindi og stuðningur sem við njótum hér á landi með því besta í heiminum. Fyrir það ber að þakka og í dag eru Hinsegin dagar ekki eingöngu barátta fyrir auknum réttindum heldur í raun fimm daga menningarhátíð þar sem hinsegin fólk þakkar fyrir sig og gefur landsmönnum öllum kost á að njóta fjölbreyttrar dagskrár. Það er mér þó nokkuð áhyggjuefni að ákveðnir hópar kjósi enn þann dag í dag að þeysa um undir merkjum haturs og dilkadráttar samkvæmt þeirra túlkun á Guðsorði. Enn þann dag í dag er skrefið út úr skápnum mörgum einstaklingum þungbært en líkt og nýleg rannsókn sýnir eru sjálfsvígshugleiðingar enn algengari meðal hinsegin unglinga en gagnkynhneigðra jafnaldra þeirra. Orðsendingar sem þessar eru ekki vænlegar til að létta á þeirri innri baráttu sem fjölmargir heyja á öllum tímum. Það er von mín að Söfnuður Moskvu-Patríarkatsins og aðrir sambærilegir lífsskoðunarhópar sjái að sér og nýti sameiningu, fegurð lífsins og gleði í baráttu sinni fremur en hatur og sundrung. Ef ekki – þá vona ég í það minnsta að þeir gæti þess að skerða hár sitt samkvæmt öllum kúnstarinnar reglum, klæðist rétt ofnum fatnaði og neyti ekki of ungra ávaxta, til að koma í veg fyrir að þurfa að deila því neðra með kynvillingum og þjófum er fram líða stundir. Ef til þess kemur ætla ég nefnilega að halda áfram að gleðjast þar.
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun