Vilji er allt sem þarf Guðmundur Franklín Jónsson skrifar 14. ágúst 2012 06:00 Alvarlegum vanskilum heldur áfram að fjölga og um tuttugu og sjö þúsund einstaklingar eru í alvarlegum vanskilum og hafa aldrei verið fleiri. Fjöldi fasteigna sem seldar eru nauðungarsölu hefur tvöfaldast í Reykjavík á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Einstaklingum sem eru í alvarlegum vanskilum fjölgar statt og stöðugt. Ekkert lát er á þessari þróun samkvæmt tölum Creditinfo. Tíundi hver fjárráða Íslendingur er í alvarlegum vanskilum. Creditinfo telur verulegar líkur á því að uppboðsmálum muni fjölga verulega og nauðungarsölur nái hámarki næsta vorið 2013. Stjörnuhrap forsætisráðherraJóhanna Sigurðardóttir (JS), hefur haft mörg tækifæri til þess að afnema verðtrygginguna og breyta kerfinu sem æðsti yfirmaður Íbúðalánasjóðs um árabil og sat í ríkisstjórn þegar MiFID-reglur Evrópusambandsins voru lögfestar þann 1. nóvember 2007. Við þessa lagabreytingu átti að afnema verðtryggingu af neytenda- og húsnæðislánum almennings. Var JS samkvæm sjálfri sér þegar hún skrifaði grein fyrir nokkru síðan sem bar nafnið „Ísland eina landið sem verðtryggir skuldir heimilanna“? JS segir í grein sinni: „Efnahagsleg rök og sanngirni mæla með því að verðtrygging á lánum til heimilanna verði alfarið bönnuð, að ríkisstjórnin sé föst í gamla verðbólgu hugsunarhættinum … Grænmetisverð eykur skuldir heimilanna. Fólkið skilur því ekki hvernig höfuðstóll skuldanna vex sífellt. Er nema von að það skilji ekki ástæðurnar…“ Hvergi annars staðarÞáverandi alþingismaður segir ennfremur: „Meginniðurstaðan er að verðtrygging er ekki á lánum til heimila í löndum OECD, að Íslandi undanskildu … Gjaldþrot heimilanna hafa vaxið gífurlega … Allt þetta ætti nú að skapa forsendur til að afnema verðtryggingu á fjárskuldbindingum heimilanna … En allt kemur fyrir ekki. Rökstuðningur ráðherrans í svari við fyrirspurn minni byggist á gamla verðbólguhugsunarhættinum, sem ríkisstjórnin virðist föst í. Það mæla bæði efnahagsleg rök og sanngirni með því að verðtrygging á lánum til heimilanna verði alfarið bönnuð á næstu misserum.“ Svo mörg voru orð JS. Persónulegt stjörnuhrapFerill JS á þessu kjörtímabili er persónulegt stjörnuhrap. Stjórn landsins er komin í slíkar ógöngur og þráseta hennar kemur í veg fyrir raunhæfar aðgerðir til að bæta hag þjóðarinnar. Stjórnvöld hafa tekið stöðu með fjármálafyrirtækjunum og erlendum vogunarsjóðum gegn almenningi. Verðtryggingin hefur lagst af fullum þunga á skuldsett heimili landsins, en fjármagnseigendur eru varðir að fullu. Engin verðtrygging er á húsnæðislánum annars staðar í heiminum. Ekki er líklegt að einhver önnur þjóð í heiminum láti bjóða sér svona fyrirkomulag. Þjóðin kallar eftir ábyrgð og fáir hafa haft það orð oftar á tungu en Jóhanna Sigurðardóttir. KynslóðasáttHelsta baráttumál Hægri grænna, flokks fólksins í næstu alþingiskosningum verður skuldaleiðrétting á verðtryggðum húsnæðislánum sem við köllum „kynslóðasátt“ og geta menn nálgast hugmyndir okkar á www.XG.is. Við verðum að gefa fjölskyldum þessa lands ný spil og byrja upp á nýtt. Vilji er allt sem þarf. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Lummuleg áform heilbrigðisráðherra Ragnar Sigurður Kristjánsson Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy Skoðun Lýðskrum Skattfylkingarinnar Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson Skoðun Krabbamein – reddast þetta? Halla Þorvaldsdóttir Skoðun Málþóf spillingar og græðgi á Alþingi Jón Frímann Jónsson Skoðun Valdið yfir sjávarútvegsmálunum Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson Skoðun Skoðun Skoðun Dæmt um form, ekki efni Hörður Arnarson skrifar Skoðun Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Um fundarstjórn forseta Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hjálpartæki – fyrir hverja? Júlíana Magnúsdóttir skrifar Skoðun Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland skrifar Skoðun Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins Grímur Atlason skrifar Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson skrifar Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson skrifar Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy skrifar Skoðun Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Málþóf spillingar og græðgi á Alþingi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Lýðskrum Skattfylkingarinnar Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Krabbamein – reddast þetta? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Valdið yfir sjávarútvegsmálunum Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lummuleg áform heilbrigðisráðherra Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. skrifar Skoðun Baráttan um kjör eldra fólks Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Elsku Íslendingar, styðjum saman Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Svigrúm Eydísar á fölskum grunni Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Betri vegur til Þorlákshafnar er samkeppnismál Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Lík brennd í Grafarvogi Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Er handahlaup valdeflandi? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Á jaðrinum með Jesú Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Þeir sem verja stórútgerðina – og heimsvaldastefnuna Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Gervigreindin beisluð Hanna Kristín Skaftadóttir,Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Kúnstin að vera ósammála sjálfum sér Heiða Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson skrifar Sjá meira
Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar
Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson skrifar