Úr vörn í sókn Hilmar Oddsson skrifar 7. ágúst 2012 06:00 Þær ánægjulegu fréttir bárust nýverið úr herbúðum ríkisstjórnarinnar að nú gætum við Íslendingar loks farið að rétta úr kútnum eftir allmörg mögur ár, botninum væri náð og fram undan væri betri, alltént skárri, tíð. Þjóðin hefur af skiljanlegum ástæðum verið í vörn síðan hún skoraði eitthvert eftirminnilegasta sjálfsmark sem nokkur þjóð hefur skorað á undanförnum áratugum. Og þannig hefur það einnig verið hjá Kvikmyndaskóla Íslands (KVÍ). Ég kom til starfa við skólann haustið 2010 og frá fyrsta degi hefur taktíkin verið varnarleikur, gegn vilja okkar og metnaði, því við viljum leika sóknarleik og skora mikið af mörkum. Núna, tæpum tveimur árum síðar höfum við kannski einu sinni eða tvisvar komist yfir miðju og varla átt nema eitt skot á mark. Það var þegar við vorum formlega samþykkt í alþjóðasamtök 130 bestu kvikmyndaskóla heims, CILECT. Það gerðist ekki á einni nóttu. Fyrst þurftum við að fara í gegnum ár reynsluaðildar, kollegarnir þurftu að tékka almennilega á okkur, hvort við værum samboðin samtökunum. Og viti menn, svo reyndist vera. Þrátt fyrir að við værum að reka einn ódýrasta kvikmyndaskóla Evrópu. Þrátt fyrir að aðstandendur skólans gætu ekki sýnt fram á örugga framtíð í verndarskjóli ríkisvaldsins. Þrátt fyrir ótal óvissuþætti í rekstri og ákveðna fordóma leikra sem lærðra. Við vorum boðin velkomin í samtökin vegna þess að erlendir félagar okkar dáðust af dirfsku okkar og baráttuþreki. Einhverjir myndu eflaust segja fífldirfsku, en útlendingarnir sáu fyrst og fremst skóla sem framleiddi meira magn af frambærilegum nemendaverkum en margir skólar sem eru stærri, eldri og ríkari. KVÍ er auðvitað engan veginn eini kvikmyndaskólinn í álfunni sem hefur þurft að berjast fyrir tilverurétti sínum. Eitt af hlutverkum CILECT er að styðja við og standa vörð um gæði kvikmyndamenntunar. Þeir vita auðvitað að hagsæld og ríkidæmi er engin trygging fyrir listrænum afrekum. En þeir vita jafnframt að af engu vex ekkert. Þeir vissu að hin ört vaxandi list- og atvinnugrein sem kvikmyndagerðin er á Íslandi þyrfti sterkt bakland, frjóa jörð. Og þeir treystu KVÍ til að vera sá jarðvegur. Íslensk stjórnvöld hafa að undanförnu sýnt að þau gera sér fulla grein fyrir mikilvægi kvikmyndagerðar fyrir íslenskt þjóðarbú. Þingmenn hafa lofað þennan umhverfisvæna og ört vaxandi tekjustofn. Enda má segja að uppskera af vinnu íslenskra sem erlendra kvikmyndagerðarmanna á Íslandi lendi fyrst og fremst í vasa ferðaþjónustunnar, hjá flugfélögum, verslunum og almennri þjónustustarfsemi, svo ekki sé minnst á þær tekjur sem ríkið fær í formi skatta. Og það er vel. En það er reyndar synd að ávöxtur erfiðisins lendir einna síðast í vasa þeirra sem skópu verðmætin, kvikmyndagerðarfólksins sjálfs. Þetta horfir þó til bóta – að flestu leyti: Það gleymdist því miður að gera ráð fyrir undirstöðunni, menntuninni sjálfri. Að vísu er hópur á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins að skila skýrslu um framtíðarskipan kvikmyndamenntunar á Íslandi á næstu dögum, og það verður fróðlegt að sjá hverjar tillögur þeirra verða. En á meðan við bíðum hangir framtíð eina starfandi kvikmyndaskóla landsins í algerri óvissu. Skóla sem hefur borið hróður íslenskrar kvikmyndagerðar langt út fyrir landsteinana. Skóla sem hefur vaxið og dafnað á undanförnum árum og er um þessar mundir að fagna tuttugu ára afmæli. Það væri sannarlega stórmannleg og glæsileg gjöf skólanum og kvikmyndagerðinni á Íslandi til handa, ef menntamálaráðherra myndi á næstunni bjóða skólanum þjónustusamning til nokkurra ára, samning sem gerði skólanum kleift að starfa með eðlilegum hætti, að mennta fólk sem stenst aljóðlegar kröfur um fagleg vinnubrögð, að snúa vörn í sókn, og koma boltanum loks yfir miðju og (við eigum nefnilega öfluga markaskorara) skora glæsileg mörk sem koma Íslandi endanlega á blað. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun