Til móts við fjölbreyttar þarfir í félagsstarfi Ellý A. Þorsteinsdóttir skrifar 5. júlí 2012 06:00 Síðastliðin ár hefur farið fram vinna við endurskoðun á starfsemi félagsmiðstöðva velferðarsviðs Reykjavíkurborgar til að koma betur til móts við mismunandi þarfir notenda og auka fjölbreytileika í þjónustutilboðum. Þá er lögð áhersla á að auka áhrif notenda á framkvæmd og skipulag þjónustunnar – þ.e. að þeir sem nýta þjónustuna hverju sinni hafi meira um hana að segja. Félagsmiðstöðvar eru starfræktar á 16 stöðum í borginni og eru þær opnar öllum íbúum borgarinnar, þótt flestir sem þær sækja séu eldri borgarar. Í ár er rúmum hálfum milljarði króna varið til þessa starfs. Í september í fyrra komu til framkvæmda breytingar á félagsstarfi borgarinnar sem verið höfðu í umræðu og undirbúningi í nokkur ár. Þær fólust í því að auka fjölbreytni og breyta áherslum í félagsstarfinu þannig að í stað þess að starfsmenn borgarinnar séu alfarið við stjórnvölinn gefst nú fleirum tækifæri til að koma að skipulagi og framkvæmd starfsins. Lögð er áhersla á að notendur hafi meiri áhrif á framboð námskeiða og að sjálfstætt starfandi leiðbeinendur geti komið inn með þau námskeið sem óskað er eftir hverju sinni. Síðastliðið haust fækkaði ráðnum leiðbeinendum á félagsmiðstöðvum, en eftir sem áður eru starfandi þar umsjónarmenn. Nú starfa á félagsmiðstöðvunum 46 leiðbeinendur og til viðbótar hafa síðan komið til starfa sjálfstætt starfandi leiðbeinendur í samræmi við óskir notenda á hverjum stað. Þannig buðu 18 sjálfstætt starfandi leiðbeinendur upp á námskeið á félagsmiðstöðvunum í maí sl. Alls fækkaði leiðbeinendum sem ráðnir voru í störf á félagsmiðstöðvunum um 22 (í 9,37 stöðugildum), sumir létu af störfum vegna aldurs og aðrir færðu sig til í starfi. Boðin var aðstoð við að útvega því starfsfólki sem þess óskaði önnur störf hjá Reykjavíkurborg. Þar sem aldraðir þurfa mikinn stuðning við þátttöku í félagsstarfi vegna aldurs eða veikinda, fyrst og fremst á félagsmiðstöðvum sem eru í beinum tengslum við rekstur þjónustuíbúða borgarinnar, varð lítil breyting. Þegar gerðar eru breytingar þarf að skoða reynsluna. Því var byrjað í vor að afla upplýsinga með spurningalistum til starfsfólks og notenda og verið er að vinna úr niðurstöðum á því mati. Jafnframt hafa fengist upplýsingar með öðrum hætti beint frá notendum, t.a.m. frá notendum í Gerðubergi og einnig frá Félagi eldri borgara þar sem komið hefur verið á framfæri ákveðinni andstöðu við breytingarnar. Starfsfólk velferðarsviðs mun hlusta á raddir notenda og vinna að úrbótum í samvinnu við þá. Stærsti hópurinn sem nýtir sér þjónustu félagsmiðstöðvanna eru eldri borgarar. Á hverju ári bætast nýir einstaklingar í þann hóp og einnig eru nýir hópar íbúa farnir að kynnast þjónustunni, s.s. atvinnulausir og lífeyrisþegar. Þarfir og óskir þeirra einstaklinga eru jafn ólíkar og þeir eru margir. Mikilvægt er að þjónustan sé í þróun, að starfsemin sé fjölbreytt og höfði til sem flestra. Blómleg starfsemi sem notendur eru ánægðir með og njóta á degi hverjum er og verður markmið félagsstarfs í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun