Lína lifir! Dagný Kristjánsdóttir skrifar 23. maí 2012 06:00 Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir að stofna Barnabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs sem væru hliðstæð öðrum menningarverðlaunum ráðsins.Litlir lesendur – litlar bókmenntir? Oft heyrir maður fordóma og fáfræði um bókmenntir fyrir börn eins og menn yfirfæri æsku og sakleysi barna yfir á bækur sem fullorðnir skrifa fyrir þau og telji þar með að barnabækur séu bókmenntalega smærri í sniðum en fullorðinsbækur. Eða að barnabækur séu alltaf að kenna lesendum að reima skóna sína og harka af sér hjá tannlækninum. Barnabækur eru sérstakt bókmenntasvið þar sem úrvalshöfundar skrifa bækur sem er vandasamara en að skrifa fullorðinsbækur í því, að höfundarnir verða að vera meðvitaðir um aldur lesenda. Barnabókahöfundur skrifar alltaf á minnst tveimur sviðum, fyrir ungan lesanda og fyrir þann fullorðna lesanda sem barnið á eftir að verða. Það hefur verið sagt að allar góðar barnabækur séu jafnframt góðar fullorðinsbækur en ekki allar fullorðinsbækur góðar barnabækur. Ég fullyrði að allir Íslendingar þekki og elski bækur Astrid Lindgren og Lína Langsokkur er virt og dáð af allt frá leikskólabörnum til menntamálaráðherra okkar sem hefur skrifað um hana lærða grein. Meðan Astrid lifði bentu aðdáendur hennar Sænsku akademíunni aftur og aftur á að enginn norrænn rithöfundur væri virtari og elskaðri – en án árangurs. En nú skal þessari vanvirðingu lokið: Lína, Emil, Ronja og Snúður fá nú uppreisn æru!Við þekkjum barnabækur hver annars? Við þekkjum og elskum barnabækur hinna norrænu ríkja. Er það ekki? Kynslóðir íslenskra barna hafa bundið ástfóstri við Lilla klifurmús og Múmínálfana og Palla sem var einn í heiminum og svona mætti lengi telja. Þeir eru heldur ekki margir sem ekki vita hver Einar Áskell er, en haldið var upp á fertugsafmæli hans í Svíþjóð 8. maí sl. Norrænu barnabækurnar sem þjóta efst á vinsældalista okkar eru sem sagt orðnar miðaldra. Hver getur hins vegar sagt til um hvað er að gerast best og skemmtilegast í norrænum barnabókum í dag? Síðasta ár voru gefnar út 188 barnabækur alls á Íslandi. Voru 69 af þeim frumsamdar íslenskar barnabækur, hinar voru þýðingar. Af 119 þýddum bókum voru 85 barnabækur þýddar úr ensku, níu úr Norðurlandamálunum (fimm úr sænsku, tvær úr dönsku, ein úr norsku og ein úr finnsku). Hlutfallið er svipað í hinum norrænu ríkjunum. Úr hópi okkar allrabestu íslensku barnabóka sýnist mér að telja megi þýddar og útgefnar bækur á Norðurlöndunum á fingrum annarrar handar. Norræn börn eru heimsbörn í alþjóðavæddu fjölmiðlaumhverfi – en þau eru líka fædd inn í norrænt samhengi, landfræðilega og menningarlega, og þau bera þess vott að Norðurlöndin hugsa um og skilja bernskuna um margt öðruvísi en aðrir menningarheimar. Norræn börn geta lært mikið hvert af öðru og hvert um annað með hjálp barnabókanna og uppalendur fengið þar valkost við yfirþyrmandi markaðsyfirburði Disneysamsteypunnar og annarra ensk-amerískra afþreyingarmiðla. Norræn samheldni framtíðarinnar hefst hjá börnunum.Ekkert má gefa eftir Ég held að Norrænu barnabókaverðlaunin eigi eftir að skipta miklu máli. Þau verða viðurkenning á því besta sem er skrifað og skapað á sviðinu á Norðurlöndum. Það verður að gera kröfur til fagþekkingar dómnefndarmanna. Það verður að búa til rýnihópa barna og síðast en ekki síst samþykktu ráðherrarnir að leggja fjármuni í hliðaraðgerðir til þess að kynna hinar tilnefndu bækur, höfunda þeirra og styrkja barnamenningu Norðurlandanna. Til þess verður að styrkja þýðingar og útgáfu bókanna landa á milli því að bókaforlögin verða að fá trú á að það sé til einhvers að gefa bækurnar út.Barnabókmenntaverðlaun Norræna ráðsins Norrænu barnabókmenntaverðlaunin munu ekki ryðja barnabókmenntaverðlaunum Vestnorræna ráðsins úr sessi. Þau verðlaun voru stofnuð árið 1999 til að styrkja barna- og unglingabókmenntir á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum – landsvæði sem á margt sameiginlegt í atvinnulífi og menningarsögu. Barnabókmenntaverðlaun Vestnorræna ráðsins voru ótrúlega flott ákvörðun á sínum tíma. Þeim er ætlað að að tengja börn og menningu og veita viðurkenningu fyrir metnaðarfulla listræna vinnu í þeirra þágu. Verðlaunin eru vegleg, 60 þúsund danskar krónur, og hafa verið veitt fimm sinnum. Síðast fékk Gerður Kristný þau fyrir unglingabókina Garðinn. Bók Margrétar Örnólfsdóttur, Með heiminn í vasanum, var tilnefnd af Íslands hálfu til verðlauna í ár og verður verðlaununum úthlutað í ágúst. Verðlaunuðu bækurnar eru þýddar á öll þrjú tungumálin en það þýðir ekki þar með að þær séu gefnar út. Það þýðir heldur ekki að fjölmiðlar sýni þeim áhuga eða lyfti þeim upp eins og vert væri. Því viljum við gjarnan breyta um leið og við hvetjum þingmenn þjóðþinganna til að samþykkja þessa viturlegu ákvörðun menntamálaráðherranna og gera hana að veruleika. Ég held að þeir hljóti að gera það. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson skrifar Skoðun Huldufólkið Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Sjá meira
Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun
Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun