Ekki víst að ég spili með gegn Selfossi Henry Birgir Gunnarsson skrifar 9. maí 2012 07:00 Haukur Páll Sigurðsson. Mynd/Valli
Valsmenn urðu fyrir miklu áfalli í upphafi leiksins gegn Fram á mánudag þegar prímus mótor liðsins, Haukur Páll Sigurðsson, meiddist. Eins og sönnum harðjaxli sæmir harkaði hann af sér, kom inn á völlinn en varð að yfirgefa hann um tíu mínútum síðar vegna sársauka. „Ég er svona skítsæmilegur. Ég er helaumur og hef verið betri," sagði Haukur Páll við Fréttablaðið í gær en Valsmenn náðu að vinna leikinn án hans. Miðjumaðurinn meiddist á mjöðm en rannsóknir í gær leiddu í ljós að ekkert er brotið eða álíka. Hann ætti því ekki að vera of lengi frá. „Að öllum líkindum er þetta bara mar sem kom af högginu. Það er í það minnsta jákvætt að það virðist ekki hafa komið neinn snúningur eða álíka á mjöðmina við þetta högg. Næstu dagar fara í það að vinna í þessu. Þetta ætti að jafna sig og vonandi kemst ég á lappir sem fyrst. Það er samt ekki víst að ég spili leikinn gegn Selfossi," sagði Haukur Páll en sá leikur fer fram á morgun. Hann viðurkennir að það hafi verið súrt í broti að þurfa að yfirgefa völlinn svo snemma í fyrsta leik á Íslandsmóti eftir langt undirbúningstímabil. „Þetta var ekki sú byrjun sem ég var að vonast eftir. Ég hugsaði um framhaldið á sumrinu eftir því sem leið á leikinn. Ég vildi ekki vera að skemma eitthvað strax með því að þjösnast á þessu. Fannst skynsamlegra að fara af velli og eiga möguleika á því að spila fleiri leiki," sagði Haukur og viðurkenndi að hafa hugsað það versta er hann meiddist. „Sjúkraþjálfaranum fannst hafa komið snúningur á mjöðmina. Svo kom Björn Zoëga læknir. Hann sagði að ekkert væri brotið og því ætti ég að fara inn á aftur og láta reyna á þetta."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Handbolti Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Enski boltinn „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Haukur heill heilsu: „Þetta var svakalegt högg“ Handbolti Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Markamet slegið þegar Frakkar pökkuðu Portúgölum saman Handbolti Jói Berg vill draga úr auglýsingaflóðinu í kringum handboltann Handbolti EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Sjáðu myndirnar: Beygðir en ekki brotnir á bóndadegi Handbolti Fleiri fréttir Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Sjá meira