Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki? Þorsteinn Sch. Thorsteinsson skrifar 4. febrúar 2012 06:00 Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlæknisembættinu til að koma inn þessum HPV–bólusetningaráróðri hér. Grein Kristjáns Sigurðssonar er birtist í Fréttablaðinu þann 31. janúar sl. á það reyndar margt sameiginlegt með greinum embættismanna Landlæknisembættisins, eða þar sem Kristján passar sig sérstaklega á því að minnast ekkert á áhættur er fylgja þessum HPV-bóluefnum, og eins og áður þá passar hann eins og þeir upp á að minnast lítið sem ekkert á reynslusögu þessara HPV-bóluefna með þessum þekktu taugaeiturefnum (e. neutoxin). Megináherslan hjá Kristjáni virtist hafa verið til þess fallin að fá fólk í HPV-bólusetningu án þess að minnast á áhættu, en hver ber ábyrgð ef upp koma alvarlegar aukaverkanir, lamanir, dauðsföll og fleira? Hvernig er það er hægt að fá þessa embættismenn hér til að taka á sig persónulega fjárhagslega ábyrgð á því að bæði HPV-bóluefnin séu örugg og að það fylgi þeim ekki nein áhætta, eins og þessir menn eru og hafa verið að gefa til kynna? Hóplögsóknir hafnar eftir Cervarix-bólusetningar Í Bretlandi er vitað til þess að hóplögsóknir séu í gangi gegn bóluefnafyrirtækinu GlaxoSmithKline eða til að fá skaðabætur eftir Cervarix-bólusetningu. Ashleigh Cave er meðal þeirra sem er að lögsækja, en hún lamaðist reyndar í fótum og hefur verið á spítala í Liverpool þar sem ástandi hennar hefur hrakað, en skv. blaðakonunni Christinu England sem er í sambandi við Cave-fjölskylduna, þá hefur öll frekari umfjöllun um Ashleigh verið bönnuð út af hagsmunaárekstrum vegna Cervarix-bóluefnisins. Nú, Hattie Vickery er einnig að lögsækja en hún er lömuð og með öndunarvandamál, þá eru fleiri stelpur að lögsækja er þjást af öndunarvandamálum og sjóntruflunum, og svo fleiri sjúkdómum (vaccineriskawareness.com). Hóplögsóknir hafnar eftir Gardasil-bólusetningar Hin 28 ára Naomi Snell frá Melbourne í Ástralíu stendur ásamt öðrum fyrir hóplögsókn gegn bóluefnafyrirtækinu Merck, en hún fékk reyndar tauga- og sjálfsónæmissjúkdóm eftir Gardasil, þá er vitað um önnur dæmi eins og hennar Gabi Swank en hún er með svæðisbundna lömun og takmarkaða sjón (articles.mercola.com/sites/articles/archive/2012/01/24/hpv-vaccine-victim-sues-merck.aspx?e_cid=20120124_DNL_art_1). Í Bandaríkjunum þá sá umhverfissinninn hún Erin Brockovich sig knúna til að fara í hóplögsókn fyrir fórnarlömb Gardasil-bóluefnisins gegn bóluefnafyrirtækinu Merck (blog.brockovich.com). En hér á landi eru menn enn þá að mæla með Gardasil-bóluefninu, þrátt fyrir að vitað sé til þess að Judical Watch hafi frá maí 2009 og til september 2010 skráð 16 dauðsföll, 798 alvarlegar aukaverkanir, 213 örorkutilfelli og allt frá MS, lömunum, minnisleysi, blindu, talmeinavandamálum og svo 25 tilfellum með Guillain Barre-sjúkdómnum (judicialwatch.org). Skjöl sem hægt var að nálgast með hinni frjálsu upplýsingalöggjöf (FOIA) í Bandaríkjunum segja að frá 1. september 2010 til 15 september 2011 hafi 26 dauðsföll verið skráð eftir Gardasil-bólusetningu. Hvernig stendur á því að menn mæla með HPV-bólusetningu með taugaeiturefnum? Það hlýtur að þurfa eitthvað til þess að fá menn til þess að flytja jafn einhliða áróður og það án þess að koma með einhver svör við öllum þessum alvarlegu aukaverkunum og dauðsföllum eftir HPV-bólusetningar er bæði læknar og fórnarlömb hafa skráð, og auk þess þar sem allar þessar frásagnir liggja út um allt internetið. Sérstaklega þar sem vitað er til þess að 108 hafa verið skráðar látnar, 9.439 skráðar á neyðar- og bráðamóttöku, 5.010 er ekki náðu bata, 2.418 sjúkrahúslegur, 212 langtíma sjúkrahúslegur, 468 lífshættuleg tilfelli, 805 er hlutu varanlega örorku eftir HPV-bólusetningu (gagnagrunninum VAERS og sanevax.org frá 14. des sl.). Það er ekki það að við höfum ekki vitnisburði einstaklinga og lækna. Hin þekkta Christina Richelle Tarsell lést einum degi eftir þriðju sprautuna í júní 2008. Brooke Petkevicius 19 ára lést tveimur vikum eftir bólusetningu. Megan Hild 20 ára lést fljótlega án nokkurra skýringa einum mánuði eftir þriðju sprautuna. Ashley 16 ára fékk krónískan sjúkdóm eftir Gardasil-bólusetningu og þjáist núna af lífshættulegum sjúkdómum (vaccineriskawareness.com) og svona mætti lengi telja, en þetta allt saman segir okkur að HPV–bóluefnin séu alls ekki örugg, og það er einfaldlega rangt að láta sem alvarlegar aukaverkanir og dauðsföll geti ekki komið upp. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Afnemum verðtrygginguna - skref fyrir skref Lilja Björk Einarsdóttir Skoðun Forgangsröðun í átök eða efnahagsaðgerðir? Jón Ferdinand Estherarson Skoðun „Mamma, af hverju viltu láta sprengja Ísland?“ Bryndís Matthíasdóttir Skoðun Hvernig á kynlíf að vera? Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson Skoðun Ný komugjöld: Aukinn kostnaður sjúklinga, sparnaður ríkisins Gunnlaugur Briem Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Lok kosninga Ingibjörg Gunnlaugsdóttir Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Framtíð lýðveldisins Íslands Snorri Sturluson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf Ásta María H Jensen skrifar Skoðun Sjálfbær rekstur eða niðurgreiddur – hvort er lúxus, Daði? Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Lok kosninga Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Afnemum verðtrygginguna - skref fyrir skref Lilja Björk Einarsdóttir skrifar Skoðun Forgangsröðun í átök eða efnahagsaðgerðir? Jón Ferdinand Estherarson skrifar Skoðun Ný komugjöld: Aukinn kostnaður sjúklinga, sparnaður ríkisins Gunnlaugur Briem skrifar Skoðun Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Framtíð lýðveldisins Íslands Snorri Sturluson skrifar Skoðun Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Hvernig á kynlíf að vera? Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Hver á að leggja símann frá sér? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun „Mamma, af hverju viltu láta sprengja Ísland?“ Bryndís Matthíasdóttir skrifar Skoðun Félagsmiðstöðvar eru haldreipi margra barna Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Sjá meira
Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson Skoðun
Skoðun Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson skrifar
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson Skoðun