Handbolti

Guðjón Valur: Þurfum að halda dampi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
Guðjón Valur Sigurðsson segir að nú skipti meginmáli fyrir íslensku landsliðsmennina að halda dampi eftir góða byrjun Íslands á Ólympíuleikunum í London.

„Við höfum verið að hugsa um lítið annað en bara næsta leik. Með sigrinum á Túnis erum við komnir áfram í 16-liða úrslitin en við verðum samt sem áður að halda áfram," sagði hann við Vísi.

„Við þurfum að halda dampi, einbeitingu og verða enn betri en hingað til. Aðalmálið er nú leikur okkar í 8-liða úrslitum þann áttunda ágúst. Það verður lykilleikur."

Ísland vann silfur á síðustu Ólympíuleikum en lenti þá í þriðja sæti síns riðils í riðlakeppninni eftir nokkra erfiða leiki þar. „Nú er munurinn sá að við þurfum að bíða eftir leiknum í 8-liða úrslitum í nokkra daga."

Hann segir þó að leikmenn ætli áfram að taka einn leik fyrir í einu. „Það eru þrír leikir eftir sem verða erfiðir."

Ísland mætir Svíþjóð annað kvöld, Frökkum á laugardaginn og lokaleikurinn í riðlinum verður svo gegn Bretum á mánudaginn næsta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×